Söguvefurinn

Faghópar og nefndir

Faghópar

Faghópar Skýrslutæknifélags Íslands starfa á sérstökum, afmörkuðum sviðum og skapa félögum vettvang til kynninga, skoðanaskipta og framkvæmda. Hóparnir starfa sjálfstætt í samráði við stjórn Ský. Ávinningur af samstarfi við Ský er m.a. sú margvíslega sérþekking sem er að finna innan félagsins, erlend tengsl og aðstaða og aðstoð sem félagið getur veitt faghópum.

   Réttindi faghópa eru:

  • Skrifstofa Ský getur annast fundaboðun.
  • Ský getur lagt fram aðstöðu fyrir fundi og útvegað veitingar.
  • Skrifstofa Ský getur séð um útsendingar til þátttakenda í faghópnum.
  • Skrifstofa Ský svarar fyrirspurnum og gefur upplýsingar um starf faghópanna.
  • Skrifstofa Ský veitir aðstoð við stærri viðburði.
  • Aðgangur að tímariti félagsins, Tölvumálum, í samráði við ritstjórn þess.
  • Aðgangur að heimasíðu félagsins, í samráði við framkvæmdastjóra.

   Skyldur faghópa eru:

  • Faghópar skulu starfa í samræmi við markmið Skýrslutæknifélags Íslands.
  • Þátttakendur í faghópum eru félagar í Ský.
  • Faghópar skila skýrslu um starf árlega, t.d. munnlega til stjórnar Ský og með grein í tímarit félagsins, Tölvumál.
  • Telji faghópur æskilegt að einhver viðburður í starfi hans nái til fleiri en meðlima hópsins, gerir hann tillögu til stjórnar Ský
    ásamt ábendingu um heppilega tímasetningu. Stjórn Ský samræmir slíkar tillögur til þess að starfsemi verði sem
    hnitmiðuðust og felur faghóp síðan framkvæmd í samstarfi við fulltrúa stjórnar og framkvæmdastjóra eftir því sem ástæða
    er til.


Fókus
, félag um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
sjá Fókus

Vefstjórnendur, faghópur um árangursríka vefstjórnun
sjá vefstjórnendur

UT-konur, faghópur UT-kvenna í upplýsingatækni
sjá UT-konur

Öldungadeild , faghópur um varðveislu sögulegra gagna og heimilda um vélræna gagnavinnslu og notkun upplýsingatækni
á Íslandi
sjá öldungadeild

Fjarskiptahópur, faghópur sem hefur fjarskiptamál að leiðarljósi
sjá fjarskiptahópur

Öryggishópur, faghópur sem hefur öryggismál að leiðarljósi
sjá öryggishópur

Rafræn opinber þjónusta, faghópur um rafræna opinbera þjónustu
sjá rafræn opinber þjónusta

******************************************************************************************************************************
Nefndir:

Ritnefnd
Ritstjórn skal skipuð ritstjóra, sem kosinn skal á aðalfundi til eins árs í senn, og ritstjórnarmönnum sem stjórn félagsins skipar í samráði við ritstjóra. Ritstjórn velur vararitstjóra úr sínum hópi. Hlutverk ritstjórnar er að ritstýra Tölvumálum, tímariti félagsins, og annarri útgáfu á vegum þess.
sjá ritnefnd

Orðanefnd
Stjórn félagsins skipar formann orðanefndar og aðra nefndarmenn í samráði við hann, til tveggja ára í senn.
Hlutverk orðanefndar er að efla og móta íslenskan orðaforða og íslenskt málfar í upplýsingatækni.
sjá orðanefnd 

Siðanefnd
Siðanefnd skal skipuð þremur mönnum og einum til vara, kjörnum til eins árs í senn. Tengist nefndarmaður meintu siðbroti telst hann vanhæfur og tekur varamaður sæti hans í nefndinni og situr hann þar til málinu lýkur. Hlutverk siðanefndar er að úrskurða í málum viðvíkjandi meintum brotum á siðareglum félagsins. Siðanefnd tekur upp mál eftir ábendingum eða samkvæmt kærum
og er heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði. Úrskurðir siðanefndar eru öllum opnir. Siðanefnd Ský skipa:
Erla S. Árnadóttir lögfræðingur, Lex ehf lögmannsstofa -  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Snorri Agnarsson - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Gunnar Linnet forstöðumaður tölvudeildar, Vegagerðin Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Til vara er Heimir Sigurðsson

Stofnuð hefur verið sérstök nefnd í tilefni að 40 ára afmæli Skýrslutæknifélags Íslands 6. apríl 2008.
Hana skipa:
Svana Helen Björnsdóttir formaður, Haukur Oddsson, Óskar Hauksson, Jóhann Gunnarsson, Elín Granz,
Stefán Hrafn Hagalín og Berglind Káradóttir.

Fulltrúar Ský í öðrum nefndum:

Í stjórn Persónuverndar, tilnefndur af Ský

Aðalmaður: Magnús Hafliðason, Símanum Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Varamaður:  Sigrún  Gunnarsdóttir, Capacent  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nefnd forsætisráðuneytis um þróun upplýsingasamfélagsins, fulltrúi Ský
Ebba Þóra Hvannberg ebba hjá hi.is

Fjarskiptaráð, fulltrúi Ský
Aðalmaður: Sæmundur E. Þorsteinsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Varamaður: Jón Ingi Einarsson, RHnet hf. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.