|
Faghópur um varðveislu sögulegra gagna og heimilda um vélræna gagnavinnslu og notkun upplýsingatækni á Íslandi.Öldungadeild Ský var stofnuð 22. júní 2004. Stofnfélagar voru 11, en eru 35 síðla árs 2007. Faghópurinn starfar undir merkjum Ský en hefur eigin stjórn (Öldungagráð) og eigin samþykktir. Sjá einnig reglur SKÝ um faghópa.
Verkefni og tilgangur faghópsins.
Tilgangur og verkefni faghópsins er varðveisla sögulegra gagna og heimilda, í hvaða formi sem er, um vélræna gagnavinnslu og notkun upplýsingatækni á Íslandi. Þetta felur meðal annars í sér að skrá sögu upplýsingatækninnar og að stuðla að því að varðveittur verði búnaður sem þýðingu hefur fyrir söguna. Félagar geta allir orðið sem unnið hafa 25 ár eða lengur á sviði upplýsingatækni. Undantekningar frá þessu ákvæði má gera vegna sérstakra verðleika sem metnir verða af öldungaráði. Umsóknum um aðild má koma til einhvers stjórnarmanna eða á skrifstofu SKÝ.
Félagsgjöld.
Félagsgjöld í öldungadeild eru engin, en félagar verða að vera skráðir í Skýrslutæknifélagið. Heimilt er að vera félagi eingöngu í faghópi og þá með takmörkuðum réttindum vegna annrrar starfsemi Ský. Gjald fyrir slíka aðild (2009) er 5.400 kr., sem er hálft einstaklingsgjald. Einnig hefur stjórn Ský samþykkt að ellilífeyrisþegar í öldungadeildinni skuli fá slíka aðild fyrir hálft ofangreint afsláttargjald, eða 2.700 kr. Heiðursfélagar Ský greiða ekki félagsgjöld.
Stjórn öldungadeildar SKÝ nefnist öldungaráð. Í öldungaráði sitja árið 2010:
Jóhann Gunnarsson, formaður
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Örn Kaldalóns, meðstjórnandi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ágúst Úlfar Sigurðsson, meðstjórnandi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sigurður Bergsveinsson, meðstjórnandi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þorsteinn Hallgrímsson, meðstjórnarndi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Bergþóra K. Ketilsdóttir, varamaður
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Starfsemi faghópsins.
Upphaf faghópsins má rekja til ráðstefnu um sögu tölvunnar á Norðurlöndum sem haldin var í Noregi í júní 2003, en til að undirbúa íslenskt erindi á hana var hóað saman nokkrum hópi manna. Í kjölfar ráðstefnunnar var ákveðið að koma efni erindisins á framfæri á íslensku, og þá auknu að nöfnum og atriðum sem höfða myndu til heimafólks. Að danskri fyrirmynd var síðan ákveðið að búa starfseminni form í faghópi innan SKÝ. Nánar er skýrt frá aðdragandanum í ársskýrslu 2004, en þar kemur fram að haldnir voru 3 fundir það ár. Í tengslum við einn þeirra var haldið í kynnisför í minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur að geyma nokkrar gagnavinnsluvélar. Efni sem safnast hefur er birt á vef faghópsins, og hefur það aukist jafnt og þétt enda þótt enn vanti umfjöllun um mikilvæga þætti sögunnar.
Annað brýnt verkefni sem fyrir liggur er að afla aðstöðu til að varðveita hlutlægar minjar, gripi. vélar og pappírsgögn. Þó að nokkuð hafi varðveist á söfnum fer margt forgörðum, til dæmis við tiltektir og áherslubreytingar hjá fyrirtækjum.
Ársskýrsla 2009
Ársskýrsla 2008
Ársskýrsla 2007
Ársskýrsla 2006
Ársskýrsla 2005
Ársskýrsla 2004
|