|
Faghópur um öryggismál
Miðvikudaginn 10. október 2007 var formlegur stofnfundur faghóps um öryggismál. Faghópurinn verður hýstur af Ský en mun starfa að mestu sjálfstætt með eigin samþykktir og eigin stjórn, með öryggismál að leiðarljósi.
Í stjórn faghóps um öryggismál eru:
Svavar Ingi Hermannsson formaður hópsins, tölvunarfr. og öryggisráðgjafi hjá Stika,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hörður Helgi Helgason lögmaður hjá LM lögmönnum og Certified Lead Auditor,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kristján Geir Arnþórsson sérfræðingur við gæðastjórn og öryggismál hjá Reiknistofu bankanna,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þorvarður Kári Ólafsson tölvunar/viðskfr. og skilríkja/öryggissérfræðingur hjá Þjóðskrá,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Stefán Snorri Stefánsson í Net- og upplýsingaöryggi hjá Póst- og fjarskiptastofnun, stefans hjá pta.is
Úlfar Erlingsson doktor í tölvuöryggisfræðum og er hjá Microsoft Research og HR,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Markmið faghópsins eru í samræmi við markmið móðurfélagsins og felast m.a. í:
- Að stuðla að bættu öryggi og öryggisvitund í fjarskipta- og upplýsingatækni.
- Að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um öryggismál og efla tengsl milli þeirra sem starfa á sviðinu og hafa áhuga á því.
- Að stuðla að góðu siðferði í tengslum við upplýsingaöryggi.
- Að efla notkun íslenskrar tungu við umfjöllun um öryggismál.
- Að vera öðrum samtökum og faghópum innan handar við að auka öryggisvitund.
- Að koma með tillögur til stjórnar Skýrslutæknifélagsins um stefnumörkun þess á sviði upplýsingaöryggis og vera málsvari þess um öryggistengd mál.
- Að vinna með fulltrúa félagsins í fjarskiptaráði í tengslum við öryggismál.
Ársskýrsla 2009
|