|
1. Nafn og aðsetur
Heiti félagsins er Skýrslutæknifélag Íslands, skammstafað SKÝ. Aðsetur félagsins er í Reykjavík. 2. Markmið
Skýrslutæknifélag Íslands er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Markmið félagsins eru:
·
að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri
notkun hennar
· að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna
· að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni
· að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni
· að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni
3. Félagsaðild
Aðild
að félaginu geta átt stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Aðild
stofnana og fyrirtækja er bundin einstaklingum á þeirra vegum. Hver
skuldlaus félagi fer með eitt atkvæði á fundum félagsins. Félagar skulu
fara að lögum og siðareglum félagsins.
4. Félagsgjöld og fjármál
Aðalfundur ákveður félagsgjöld fyrir eitt ár í senn.
Starfs-
og reikningsár félagsins er almanaksárið. Félagsgjöld til félagsins
skulu greidd fyrir 1. apríl. Framkvæmdastjóri annast fjárreiður
félagsins í samráði við gjaldkera þess. Endurskoðaða reikninga
félagsins skal leggja fyrir aðalfund til samþykktar. Reikningar skulu
vera aðgengilegir félagsmönnum á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir
aðalfund.
5. Stjórn
5.1 Stjórnskipulag
Aðalfundur
fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Fundurinn kýs félaginu stjórn
sem annast málefni þess milli aðalfunda. Aðalfundur kýs tvo
skoðunarmenn reikninga félagsins. Aðalfundur setur félaginu siðareglur
og kýs siðanefnd. Aðalfundur kýs ritstjóra skv. gr. 6. Stjórn félagsins
skipar starfsnefndir eftir því sem hún telur ástæðu til. Orðanefnd skal
skipuð á fyrsta fundi stjórnar. Stjórn félagsins tilnefnir
fulltrúa fyrir félagið í nefndir, stjórnir og/eða ráð í öðrum félögum,
samtökum eða á vegum opinberra aðila.
5.2 Félagsstjórn
Stjórn
félagsins skipa sex menn, allir kjörnir til tveggja ára og skulu þeir
ganga úr stjórninni á víxl. Kjósa skal formann sérstaklega en að öðru
leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum og kýs varaformann, ritara
og gjaldkera. Tveir varamenn skulu kosnir til eins árs í senn. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundum ræður atkvæði formanns. Hætti
stjórnarmaður í félaginu á kjörtímabilinu skal varamaður taka sæti hans
til næsta aðalfundar, en þá skal kjósa stjórnarmann í stað hans til
loka kjörtímabils hans. Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar
stjórninni eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund. Stjórn skal í
upphafi starfsárs setja sér starfsáætlun í samræmi við markmið
félagsins.
6. Nefndir
6.1 Siðanefnd
Siðanefnd
skal skipuð þremur mönnum og einum til vara, kjörnum til eins árs í
senn. Tengist nefndarmaður meintu siðbroti telst hann vanhæfur og tekur
varamaður sæti hans í nefndinni og situr hann þar til málinu lýkur.
Hlutverk
siðanefndar er að úrskurða í málum viðvíkjandi meintum brotum á
siðareglum félagsins. Siðanefnd tekur upp mál eftir ábendingum eða
samkvæmt kærum og er heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði.
Úrskurðir siðanefndar eru öllum opnir.
6.2 Ritstjórn
Ritstjórn
skal skipuð ritstjóra, sem kosinn skal á aðalfundi til eins árs í senn,
og ritstjórnarmönnum sem stjórn félagsins skipar í samráði við
ritstjóra. Ritstjórn velur vararitstjóra úr sínum hópi. Hlutverk
ritstjórnar er að ritstýra Tölvumálum, tímariti félagsins, og annarri
útgáfu á vegum þess.
6.3 Orðanefnd
Stjórn félagsins skipar formann orðanefndar og aðra nefndarmenn í samráði við hann, til tveggja ára í senn.
Hlutverk orðanefndar er að efla og móta íslenskan orðaforða og íslenskt málfar í upplýsingatækni.
7. Aðalfundur
Aðalfund
skal halda eigi síðar en 14. febrúar ár hvert og skal boða hann
bréflega eða með öðrum sannanlegum hætti með 14 daga fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrslur nefnda og starfshópa
3. Reikningar félagsins
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Stjórnarkjör
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
8. Nefndakjör
9. Önnur mál
Kosið
skal skriflega sé þess óskað. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti
atkvæða. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað.
8. Félagsfundur
Almenna
félagsfundi skal stjórnin halda um félagsmálefni þegar ástæða þykir
til. Til félagsfunda skal boða með tilkynningu til félagsmanna eða
auglýsingu.
9. Aukaaðalfundur
Til aukaaðalfundar skal boðað þegar stjórn félagsins þykir ástæða til eða þegar a.m.k. 50 félagsmenn óska þess skriflega. Á
slíkum fundi skal fjallað um störf stjórnar og/eða nefnda félagsins sem
annars væri fjallað um á reglulegum aðalfundi félagsins. Til
aukaaðalfundar skal boðað með sama hætti og til aðalfundar. Í
fundarboði skal geta þess umræðuefnis sem tekið skal fyrir á fundinum.
Aukaaðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað. Á
aukaaðalfundi skulu aðeins rædd og tekin til umfjöllunar þau mál sem
fram koma í fundarboði.
10. Breytingar á félagssamþykktum
Tillögur
um breytingar á félagssamþykktum skal senda stjórn félagsins fyrir lok
starfsárs og skulu þær lagðar fyrir næsta aðalfund. Fram komnar
tillögur og/eða tillögur stjórnar til breytinga á félagssamþykktum
skulu kynntar félagsmönnum í fundarboði. Breyting á félagssamþykktum
öðlast ekki gildi nema hún sé samþykkt með minnst 2/3 hlutum greiddra
atkvæða fundarmanna á löglega boðuðum aðalfundi.
11. Félagsslit
Aðalfundur
einn getur slitið félaginu. Með tillögu um félagsslit skal farið sem um
breytingu á félagssamþykktum væri að ræða. Við félagsslit skal eignum
félagsins ráðstafað í samræmi við markmið félagsins, samkvæmt 2. gr.
Þannig samþykkt á aðalfundi Ský, 27. janúar 2005 |