| Ítarefni um Ský |
|
Skýrslutæknifélag Íslands, Ský, hefur starfað síðan 1968 og því
elstu samtök á Íslandi sem starfa að UT og óháð stofnunum og
hagsmunasamtökum. Ekki þarf að taka fram að tækniheimurinn hefur gengið
í gegnum margar byltingar á þeim tíma. Fáir höfðu aðgang að tölvum
fyrir 38 árum en eru fyrir löngu orðnar almenningseign og órjúfanlegur
hluti, og ómissandi í daglegu lífi fólks á öllum aldri og fyrir
starfsemi þjóðfélagsins. Með tilkomu öflugra og hraðvirkra tölvuneta
hefur heimurinn orðið sem eitt og haft í för með sér að UT-fyrirtæki á
Íslandi geta selt vörur, þjónustu og sérfræðiþekkingu sína um allan
heim. Ský hefur fylgt þessari byltingu frá upphafi og starfið tekur
jafnan mið af tíðarandanum þó nafnið endurspegli rætur tækninnar. Félagar í Ský, sem eru áhugafólk um upplýsingatækni, koma víða að úr
atvinnu- og viðskiptum og spanna litríka flóru upplýsingatækninnar með
mismunandi áherslur og starfsemi félagsins endurspeglar það á
margvíslegan hátt. Aðalstarfsemi félagsins er funda- og ráðstefnuhald.
Félagið stendur fyrir tugum atburða á hverju ári. Heilsdagsráðstefnur
eru þar stærstar þar sem tekin eru fyrir tiltekin málefni í UT og þau
krufin til mergjar þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar halda
fyrirlestra. Hádegisfundir njóta einnig vinsælda þar sem stutt,
hnitmiðuð erindi eru haldin þar sem gjarnan eru tekin fyrir málefni sem
eru í brennidepli þá stundina.
Félagið heldur úti vef þar sem eru upplýsingar um starfsemi félagsins,
komandi atburði, faghópa, stjórn og nefndir en þar eru einnig birtar
daglega nýjar fréttir úr tækniheiminum, greinar eftir innlenda höfunda
og svo er aðgangur að tímaritinu Tölvumál en félagið hefur gefið úr
tímarit síðastliðin þrjátíu ár. Vefurinn hefur að geyma PDF-skjöl af
tímaritinu en það kom síðast út í desember síðastliðnum og hafði að
geyma sextán greinar eftir innlenda höfunda.
Vaxandi þáttur í starfseminni undanfarin ár eru faghópar þar sem
tilteknum málum innan UT eru gerð ítarleg skil. Faghóparnir eru:
UT-konur sem eru samtök kvenna sem starfa í upplýsingatækni, Fókus sem
starfar að upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, Faghópur um vefstjórn
sem starfar að veftækni, Öryggishópur sem hefur staðið fyrir ráðstefnum í tengslum við öryggismál, Öldungadeild sem starfar að
sögulegri varðveislu gagna og tækja UT á Íslandi og Faghópur um fjarskiptamál sem stofnaður var í mars 2008. |


