| Saga Skýrslutæknifélagsins |
|
Skýrslutæknifélag Íslands er félag
allra þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni.
Skýrslutæknifélagið, eða Ský eins og það er skammstafað, er félagsskapur, óháður
stofnunum þjóðfélagsins eða hagsmunasamtökum. Tölvuorðasafn Skýrslutæknifélags Íslands, sem gefið var út í
ritröð Íslenskrar málnefndar 1998, segir um orðið upplýsingatækni (e.
information technology): Það að beita viðeigandi tækni við gagnavinnslu. Með
tækni er átt við tölvutækni, fjarskiptatækni og rafeindatækni.
Skýrslutæknifélag Íslands var
stofnað árið 1968. Stofnendur félagsins voru liðlega 100 manns. Nú eru
fullgildir félagar rúmlega níu hundruð.
|

