Söguvefurinn

Stiklað á stóru

Stiklað á stóru í sögu Ský

Fyrsta talvan

Tölvubyltingin byrjar á Íslandi. Fyrstu tölvunni er skipað á land
5. október 1964 en það var
IBM 1401 tölva sem sett var
upp hjá Skýrr í desember 1964. Í samstæðunni voru
3 vélar, IBM 1401 miðeining með 4000 stafa vinnsluminni,
IBM 1402 Spjaldalesari/gatari og IBM 1403 prentari.
Skv. Paul White, http://www2.netdoor.com/~pwhite/1401.html,

var tifhraðinn 0,086 mHz mældur á nútíma mælikvarða.

 

 



Þórhallur M. Einarsson tæknimaður
hjá IBM, Ragnar Ingimarsson verkfræðingur,
Helgi Sigvaldason verkfræðingur, Oddur
Benediktsson verkfræðingur og Magnús
Magnússon prófessor við rafreikninn
sem kominn er á sinn stað
í Raunvísindastofnun í desember 1964.


 


 

 

 

 


Fyrsti formaðurinn

Hjörleifur Hjörleifsson var kosinn fyrsti formaður Skýrslutæknifélags Íslands á stofnfundi félagsins í sal Bankasamstarfsnefndar við Laugaveg þann 6. apríl 1968. Hann gengdi formennsku allt til ársins 1975 og mótaði á þeim tíma starfshætti félagsins. Hann var einn af frumkvöðlum vélrænnar gagnavinnslu á Íslandi og vann til að mynda að því að fá alphabetískar skýrslugerðarvélar til Rafmagnsveitu Reykjavíkur árið 1952 en 28. ágúst það ár voru Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurbæjar stofnaðar. Hjörleifur var fyrsti íslendingurinn sem sæmdur var Hinni íslensku fálkaorðu fyrir störf að gagnavinnslumálefnum. Aðrir í fyrstu stjórn Skýrslutæknifélagsins voru Gunnlaugur Björnsson varaformaður, Jakob Sigurðsson ritari, Svavar Jóhannsson féhirðir, Bjarni P. Jónasson skjalavörður og Magnús Magnússon meðstjórnandi en varamenn voru Sigfinnur Sigurðsson og Sigurður Þórðarson.


Tölvumál
Tölvumál, fagtímarit um upplýsingatækni. Blaðið kom fyrst út í nóvember 1976. Í fyrsta tölublaðinu kemur fram að blaðið var upphaflega hugsað til þess að gefa félagsmönnum yfirlit yfir fundi félagsins en auk þess vonaðist ritnefnd til þess að blaðið gæti orðið vettvangur umræðna og fróðleiks á sviði félagsmála og tölvutækni.



Orðanefndin
Orðanefndin er elsti faghópur innan skýrslutæknifélagsins og hefur starfað frá því skömmu eftir að félagið var stofnað. Auk orðanefndarinnar starfa þessi hópar á vegum félagsins: Faghópur um fjarskiptamál, Faghópur um árangursríka vefstjórnun, Faghópur um öryggismál, Fókus - félag um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, Félag kvenna í upplýsingatækni og Öldungadeild sem er faghópur um varðveislu sögulegra gagna og heimilda um vélræna gagnavinnslu og notkun upplýsingatækni á Íslandi. Árið 1983 sendi orðanefndin frá sér fyrstu útgáfu Tölvuorðasafns. Þá voru í safninu tæplega 1000 íslensk heiti og rösklega 1000 ensk heiti á um 700 hugtökum. Í annarri útgáfu frá 1986 var skilgreiningum bætt við og hugtökum og heitum fjölgað. Fjórða útgáfa Tölvuorðasafns kom út árið 2005 og hefur að geyma um tíu sinnum fleiri hugtök og heiti en fyrsta útgáfan eða um 7700 íslensk heiti og um 8500 ensk heiti ásamt skilgreiningum á rúmlega 6500 hugtökum sem lúta að upplýsingatækni og tölvunotkun. Tölvuorðasafnið er einnig aðgengilegt til leitar á vef félagsins www.sky.is. Hinn 17. júní 1997 veitti stjórn Lýðveldissjóðs Sigrúnu Helgadóttur, formanni nefndarinnar, sérstaka viðurkenningu fyrir lofsverð störf til eflingar íslenskri tungu. Á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember 2006, veitti menntamálaráðherra orðanefndinni sérstaka viðurkenningu fyrir störf í þágu íslensks máls.



Ráðstefnur
Þessi mynd er frá 20 ára afmælishátíð Skýrslutæknifélagsins 1988 en efnt var til Spástefnu að því tilefni þar sem umfjöllunarefnið var þróun tölvunotkunar og áhrif hennar á störf og þjóðlíf. Frá stofnun hefur Skýrslutæknifélagið lagt áherslu á áhugaverða hádegisverðarfundi og ráðstefnur. Undanfarin áratug hefur félagið staðið fyrir 117 atburðum um ýmis tengd upplýsinga- og fjarskiptatækni.