Söguvefurinn

Tölvupóstlistinn

Reglur um notkun tölvupóstlista Skýrslutæknifélags Íslands

Um er að ræða tvo lista, annan með félagsmönnum félagsins og hinn með utanfélagsmönnum.

  1. Listarnir eru á verksviði og á ábyrgð framkvæmdastjóra félagsins.
  2. Mönnum er gefinn kostur á að tölvupóstföngum þeirra sé bætt við póstlistann.
  3. Menn geta hvenær sem er óskað eftir því að tölvupóstföng þeirra verði felld út af listanum og verður umsvifalaust  orðið við þeim beiðnum.
  4. Mönnum verða kynntir allir þeir skilmálar sem félagið setur um notkun póstlista þegar þeim er gefinn kostur á að skrá sig.
  5. Póstlistinn verður ekki gerður aðgengilegur öðrum aðilum en starfsmönnum og stjórnarmönnum Ský, og þá eingöngu í tengslum við starfsemi Ský eða nefndir félagsins. Þó er heimilt, að fengnu samþykki stjórnar hverju sinni, að senda út upplýsingar um efni sem ætla má að eigi sértakt erindi til þeirra sem eru á tölvupóstlistanum.
  6. Listanum verður ekki dreift, hann ekki seldur eða gerður aðgengilegur þriðja aðila.
  7. Eingöngu framkvæmdastjóri og formaður félagsins mega senda á póstlistann.

Notkun tölvupóstlistanna

Listinn er eingöngu notaður fyrir efni sem tengist starfsemi félagsins, svo sem til að auglýsa ráðstefnur félagsins og minna á þær. Föst regla er að minna á hverja ráðstefnu og gefa fólki kost á að skrá sig með því að svara póstinum.

 Skráning
Áhugasamir geta skráð sig á póstlistann hér á heimasíðu félagsins eða sent tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.