Söguvefurinn

Um Fókus

Félag um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu

Föstudaginn 15.október 2004 var formlegur stofnfundur félagsins Fókus, sem er félag um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu. Félagið Fókus verður hýst af Ský en mun starfa að mestu sjálfstætt  með eigin samþykktir og eigin stjórn, með bætta upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu að leiðarljósi.

Markmið félagsins er:

· að vekja athygli á hlutverki upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, sérstaklega hvað varðar gæði þjónustu, öryggi sjúklinga og
  hagræðingu í rekstri.
· að breiða út þekkingu á og stuðla að skynsamlegri notkun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
· að auka samstarf og skilning á milli mismunandi hópa fagfólks í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
· að skapa þverfaglegan vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félaga í hópnum svo og félagsmanna í
  Skýrslutæknifélagi Íslands.
· að koma fram opinberlega fyrir hönd fagfólks í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
· að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
· að styrkja rannsóknir, menntun og þróunarstarf í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
· að stuðla að samstarfi við félög í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu í öðrum löndum.
· að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.

Í stjórn Fókus eru:
Valgerður Gunnarsdóttir, formaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ásta Thoroddsen, varaformaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Benedikt Benediktsson, meðstjórnandi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, meðstjórnandi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Óskar Einarsson, meðstjórnandi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ásgerður Magnúsdóttir, varamaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Guðlaug Sigurðardóttir, varamaður gudlaug hjá stiki.eu

Árleg félagsgjöld fylgja verðskrá Ský og verða allir félagar Fókus sjálfkrafa í Ský skv. reglum um faghópa.
Aðild hefur ýmsa kosti í för með sér s.s. :

1. Lægri ráðstefnugjöld á þá atburði sem Ský og Fókus stendur fyrir.
2. Áskrift að Tölvumálum, en faghópurinn mun fá eyrnamerkt pláss fyrir greinar eða aðra umfjöllun um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu.
3. Aðstoð við að koma á fót vinnuhópum eða tengslanetum sem samræmast markmiðum Fókus.
4.Tækifæri til að starfa í/með undirbúningsnefndum ráðstefna og funda Fókus.

Samþykktir

Ársskýrsla Fókus 2009

Ársskýrsla Fókus 2008
Ársskýrsla Fókus 2007
Ársskýrsla Fókus 2006
Ársskýrsla Fókus 2005

Frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins í síma 553 2460 eða í tölvupósti; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.