| 2010 Nýjungar í hugbúnaðargerð |
|
Hádegisverðarfundur um nýjungar í hugbúnaðargerð Ný hugsun í hugbúnaðargerð, vefkerfi, dreifð kerfi, "rich client", vefþjónustur og fleira. Hugbúnaðargerð hefur tekið miklum stakkaskiptum síðustu ár eftir því sem vefkerfi hafa þróast og þar með þau tól sem notuð eru til þróunar Á fundinum verða teknar til skoðunnar nokkrar vel þekktar nýjungar, bæði kerfi og hugmyndafræði sem þegar hefur sannað sig í íslensku umhverfi. Tilvalið tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að heyra reynslusögur af því sem er heitast í hugbúnaðargeiranum í dag. Dagskrá: 11:50 – 12:05 Skráning þátttakenda 12:20 – 12:40 Sveigjanleg og nútímaleg viðmótsþróun með Windows Presentation Foundation (WPF) 12:40 – 13:00 Samskiptaferlar hjá Dohop.com (AJAX/Python/Twisted) 13:00 – 13:20 SOA högun með REST vefþjónustum 14:00 Fundi slitið Matseðill: Innbakaðir sjávarréttir í smjördeigi með sveppa og grænmetisduxeli. Hvítvínssósa, kryddhrísgrjón og heimabakað brauð. Kaffi og konfekt á eftir. Undirbúningsnefnd: Jónas Sigurðsson, Gagnavarslan og Björgvin Þórðarsson, NBI
|
