| Söguvefur |
|
Markmið söguvefs Öldungadeildar SKÝ er að safna saman hvers konar fróðleik um sögu upplýsingatækninnar á Íslandi. Félagar og aðrir áhugasamir skrá efnið og láta það söguvefnum í té. Aðalefnisflokkar: Annálar / Verkefni / Tækni / Samfélag / Heimildir © Höfundarréttur að söguvefnum sem heild er hjá Öldungadeild SKÝ. Höfundar pistla eiga höfundarrétt hver á sínu efni og þarf leyfi þeirra til að afrita það til birtingar annars staðar. Greinar til birtingar, svo og athugasemdir eða leiðréttingar, sendist ritstjóra, sem er um þessar mundir Jóhann Gunnarsson, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Nýtt efni
17.01.2007. Fyrstu ár Reiknistofnunar Háskóla Íslands Ákall frá Öldungadeild: Öldungadeild SKÝ vinnur eins og kunnugt er að söfnun og varðveislu heimilda um sögu upplýsingatækninnar á Íslandi. Allmiklu af rituðu efni hefur verið safnað á Söguvefinn, þar sem frumkvöðlar á þessu sviði hafa rifjað upp fyrstu verkefnin og annað áhugavert. Áhugi er fyrir því að bjarga frá glötun ýmsum heimildum í föstu formi, vélbúnaði, verklýsingum, forritum og öðru af því tagi. Til að slíkt verði unnt þarf Öldungadeildin að hafa aðgang að húsnæði. Brýnast er að komast yfir aðstöðu til að geyma það sem til fellur og ella myndi verða hent, en framtíðarsýnin er óneitanlega sú að geta haft eitthvað af slíkum búnaði til sýnis. Ekkert fjármagn er til reiðu, þannig að ekki eru tök á að leigja geymslu. Því hefur verið ákveðið að leita til félagsmanna SKÝ og annarra lesenda Tölvumála með þá málaleitan að þeir geri félaginu viðvart um húsnæði sem þeir kynnu að vita af eða ráða yfir og fáanlegt væri til afnota til að minnsta kosti 3 - 5 ára. Ekki eru til áætlanir um flatarmálsþörf, og má segja að allt komi til greina. En miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja um möguleg aðföng má reikna með að allt að 100 fermetrar myndu uppfylla brýnustu þarfir í þann tíma. Ekki höfum við efni á að vera kröfuhörð um staðsetningu en rýmið þarf að vera þurrt og upphitað. Hafið vinsamlegast samband við skrifstofu SKÝ eða einhvern úr stjórn Öldungadeildar, en upplýsingar um stjórnarmenn er að finna á vef SKÝ undir Öldungadeild.
|

