Söguvefurinn

Tölvuorðasafn

Orðanefnd hefur nú gefið út Tölvuorðasafn í fjórða sinn.  

Í nýrri útgáfu Tölvuorðasafns eru um 7700 íslensk heiti og um 8500 ensk heiti á rúmlega 6500 hugtökum sem lúta að upplýsingatækni og tölvunotkun. Orðasafnið kom nú út í fjórða sinn 24. ágúst 2005 og eru hugtök um 30% fleiri en í síðustu útgáfu, enda er safnið nú 555 blaðsíður að stærð. Hugtökin í Tölvuorðasafni hafa flest verið sótt í alþjóðlega staðla. Líklega eru Íslendingar einna lengst á veg komnir með íslenskun tölvumáls ef litið er til hinna Norðurlandanna.

Tölvuorðasafnið er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er íslensk-ensk orðaskrá og er þar að finna skilgreiningar og útskýringar á flestum hugtökunum. Síðari hlutinn er ensk-íslensk orðaskrá. Þar er íslensk þýðing við hvert orð og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans.

Auk fullgildra heita eru fjölmargar skammstafanir í Tölvuorðasafni. Oftast er einnig sýnt hvernig lesið er úr þeim.

Tölvuorðasafn er afrakstur af áratuga starfi orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands. Orðanefndarmenn eru brautryðjendur tölvutækninnar á Íslandi og hafa fjölbreytilega reynslu af tölvunotkun allt frá upphafsárum tölvuvinnslu á Íslandi. Auk þess hafa þeir fengið til samvinnu við sig fjölmarga sérfræðinga í fremstu röð. Orðanefndina skipa Baldur Jónsson, Sigrún Helgadóttir Þorsteinn Sæmundsson og Örn S. Kaldalóns. Stefán Briem annast ritstjórn.
 

Tölvuorðasafn er höfuðrit á sínu sviði og gagnlegt öllum sem nota tölvur og fást við upplýsingatækni, allt frá byrjendum til sérfræðinga. Þetta orðasafn er ómissandi þeim sem vilja tala og skrifa á íslensku um upplýsinga- og tölvutækni á vönduðu máli.

Útgefandi Tölvuorðasafns árið 2005 er Hið íslenska bókmenntafélag í samvinnu við orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands. Bókina er unnt að nálgast hjá helstu bókaverslunum og hjá útgefanda, en þar má panta hana með 10% forlagsafslætti í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sjá einnig www.hib.is