Söguvefurinn

Til greinahöfunda

Leiðbeiningar til greinahöfunda

Skil greina
Æskileg lengd greina í prentútgáfu Tölvumála er tvær blaðsíður, eða u.þ.b. 1200-1400 orð.
Millifyrirsagnir eru mjög æskilegar; þær bæta útlit og framsetningu efnis.

Munið að senda með
- heiti greinar
- nafn og titil/starfsheiti höfundar

Myndir
Vísa þarf til mynda í almennu máli, þ.e. ekki skrifa „eins og sjá má á mynd hér að neðan“, því erfitt getur verið að taka tillit til þess við uppsetningu blaðsins í prentúgáfu.

Æskilegt er að fylgi með
- mynd af höfundi, á tölvutæku formi í minnst 300 punkta upplausn
- myndir/teikningar til útskýringa eða skreytinga.

Ljósmyndir og flóknari myndir þurfa að vera í minnst 300 punkta upplausn. Þær þurfa að berast á því sniði sem þær eru búnar til á, ekki afritaðar inn í t.d. ritvinnsluskrá. Allir milliliðir rýra prentgæði verulega.

Málfar
Ritstjórn Tölvumála er skipuð félögum úr Skýrslutæknifélaginu, sem vinna að ritstjórninni í frístundum. Vinsamlega takið tillit til þess að um takmarkaðan starfskraft er að ræða við prófarkalestur og lagfæringar á málfari og því um líku.

Greinahöfundar eru minntir á Tölvuorðasafn, 4. útgáfu 2005 og sama orðasafn á vefslóð Íslenskrar málstöðvar sem er http://www.ismal.hi.is en til að fara rakleitt inn á orðasafnið skal nota slóðina: http://herdubreid.rhi.hi.is:1026/wordbank/search

Þegar eitthvað er að ráði af nýyrðum eða framandlegum heitum í textanum hjálpar það lesandanum að láta orðalista fylgja. Þá mun ritstjórn, annað tveggja birta, hann sem viðauka við greinina eða fella inn í umræðu um íslenskun tölvuhugtaka, sem má finna í flestum tölublöðum Tölvumála.

Orðanefnd Ský er fús til að aðstoða greinahöfunda vegna nýyrða eða orða sem ekki finnast í orðabókum. Hafið samband við ritstjórnarfulltrúa um milligöngu.

Ritstjórn Tölvumála