|
Tímaritið Tölvumál hefur gegnt mikilvægu hlutverki í starfsemi félagsins. Blaðið kom fyrst út árið 1976 og hefur verið gefið út allar götur síðan. Blaðið kemur út einu sinni til tvisvar á ári í 1200-1500 eintökum og er efni þess tengt tölvunotkun og upplýsingatækni.
Áskrift er innifalin í félagsaðild að Skýrslutæknifélaginu. Hægt er að nálgast eldri tölublöð á skrifstofu félagsins, Engjateig 9 og hér. Ritstjórn velur og ber ábyrgð á efni tímaritsins.
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á ritrýndar greinar í blaðið. Lesa má reglur um slíkar greinar á vef félagsins, www.sky.is, en árangurinn af þessari nýjung fer auðvitað alfarið eftir því hversu duglegir fræðimenn eru að senda inn góðar greinar og hversu vel gengur að fá aðra fræðimenn til að ritrýna þær.
Árið 2008 gerðust Tölvumál aðili að evrópska upplýsingatæknitímaritinu UPGRADE, sem gefið er út af CEPIS, en Ský er aðili að þeim samtökum. Með þessari aðild verður hægt að birta áhugaverðar greinar úr Tölvumálum fyrir stærri lesendahóp í tímaritinu UPGRADE.
Í ritstjórn eru:
Þorvarður Kári Ólafsson, Þjóðskrá -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, ritstjóri
Ágúst Valgeirsson -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ásrún Matthíasdóttir -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Brynjar Smári Bjarnason - bsb hjá skyrr.is
Helga Jóhanna Oddsdóttir - helgajo hjá ok.is
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2009
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2008
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2006
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2005
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2004
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2003
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2002
|