Tölvan sem olli straumhvörfum 10 ára
Það var um miðjan ágúst árið 1998 sem Apple kynnti til sögunnar tölvuna iMac og það boðaði bæði endurkomu Apple og nýja strauma í hönnun og notkun tölva. Um miðjan tíunda áratuginn leit út fyrir að dagar Apple væru taldir en Steve Jobs kom á ný og hrissti upp í tölvuheiminum með tölvunni litríku.