Óskað er eftir félögum í Ský sem hafa áhuga á að taka þátt í að undirbúa viðburði á vegum félagsins. Ákveðið hefur verið að setja á legg sérstaka undirbúningsnefnd til að sjá um viðburðina "Á leiðinni heim....." í vetur sem voru mjög vinsælir síðastliðinn vetur, sérstaklega örnámskeiðin.
Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við skrifstofu félagsins með því að senda tölvupóst á sky@sky.is