Sigrún Helgasdóttir
Sigrún Helgadóttir, tölfræðingur, fædd 11.05.1945
Sigrún
var gerð að heiðursfélaga Skýrslutæknifélags Íslands í boði sem haldið
var í tilefni af útgáfu 3. útgáfu Tölvuorðasafnsins þann 4. febrúar
1998. Sigrún lauk B.Sc. Hons. prófi í tölfræði frá Háskólanum í
Liverpool 1969 og M.Sc. prófi frá sama háskóla 1976. Sigrún starfaði
sem tölfræðingur og sérfræðingur í gagnavinnslu á Reiknistofnun
Háskólans, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Hagstofu Íslands. Sigrún
hefur verið formaður orðanefndar Skýrslutæknifélagsins frá 1978.
Nefndin hefur frá þeim tíma undirbúið þrjár útgáfur Tölvuorðasafns
(gefnar út af Íslenskri málnefnd 1982, 1986 og 1998). Sigrún var
ritstjóri annarrar útgáfunnar 1986. Sigrún hefur starfað sem ráðgjafi
um tölvuorðaforða í Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs. Hún sat í
stjórn Íslenskrar málnefndar frá 1989-2001 og sinnti þá ýmsum störfum
fyrir Íslenska málnefnd, var m.a. fulltrúi Íslenskrar málnefndar í
Fagráði í upplýsingatækni. Einnig má geta þess að Sigrún starfaði um
tíma við stundakennslu við verkfræði-og raunvísindadeild Háskóla
Íslands. Hún hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi í gagnavinnslu og
tölfræði frá október 2000 og unnið við rannsóknir í tungutækni fyrir
styrk frá tungutækniverkefni menntamálaráðuneytisins frá október 2002.