Skip to main content
1. mars 2018

Andlát dr. Jón Þór Þórhallsson

Hinsta kveðja til heiðursfélaga Ský - minningarorð
JonThorThorhallsson
Dr. Jón Þór Þórhallsson 

Fæddur 21.06.1939 
Dáinn 20.09.2016 

Höfundar: Ómar Ingólfsson, Stefán Kjærnested og Þorsteinn Garðarsson      


Einn af þeim mönnum sem hefur haft einna mest áhrif á þróun upplýsingatækni á Íslandi er Dr. Jón Þór Þórhallsson, er við kveðjum hér.  Eftir stúdentspróf fór hann fór til náms í Þýskalandi árið 1959, fyrst við Tækniháskólann í Karlsruhe en síðan við Háskólann í Gießen í Hessen þar sem hann hlaut doktorsgráðu í fræðilegri eðlisfræði og útskrifaðist með láði árið 1967.

Á árunum 1969-1974 starfaði Jón Þór sem prófessor við Red Deer College í Alberta í Kanada. Þar stundaði hann rannsóknir og kennslu í eðlisfræði, stærðfræði og tölvunarfræði ásamt því að vera forstöðumaður tölvuþjónustudeildar háskólans. Árið 1974 kom Jón Þór aftur heim til Íslands og varð forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans. Því starfi gegndi hann til 1977 þegar hann varð forstjóri Skýrr hf. Jón Þór var forstjóri Skýrr í 20 ár, allt til ársins 1997 og samhliða því starfi var hann einnig dósent við Háskóla Íslands og kenndi upplýsingatækni í Viðskipta- og hagfræðideild HÍ á árunum 1974-1997.

Undir forystu Jóns Þórs þróaðist Skýrr frá því að vera gagnavinnslufyrirtæki í að vera upplýsingafyrirtæki.  Í fyrstu voru öll vinnslugögn skráð í gataspjöld og síðan unnin í runuvinnslu.  Undir forystu Jóns hóf fyrirtækið sívinnsluvæðingu og tókst á við það verkefni að smíða og reka upplýsingakerfi fyrir allar grunnskrár þjóðfélagsins; þjóðskrá, fyrirtækjaskrá, fasteignskrá, skipaskrá og bifreiðaskrá. Einnig bjó Skýrr til og rak upplýsingakerfi sem héldu utan um álagningu skatta, tollakerfi og innheimtu opinberra gjalda sem og launa- og bókhaldskerfi fyrir ríki og borg.  Jón lagði mikla áherslu á að kerfin mynduðu lífræna heild, væru nútímaleg og að gögn flæddu greiðlega milli kerfa.

Jón Þór var ákveðinn forstjóri, hafði styrka stjórn á öllum þáttum rekstar og skýra sýn á hvernig Skýrr skyldi þróast.  Mikill áhersla var lögð á íslensku, öryggismál og gæðamál svo eitthvað sé nefnt. Jón Þór  taldi það eitt af sínum hlutverkum að ala upp nýja kynslóð sem ryðja skyldi brautina fyrir þróun upplýsingatækni á Íslandi og tryggja hagnýtinu hennar sem víðast í þjóðfélaginu.  Margir starfsmenn kynnust  Jóni fyrst sem kennara í Háskólanum og síðan sem lærifaðir í Skýrr.  Hann var óþreytandi að ryða brautina fyrir nýjar hugsanir og aðferðir hvort sem var í stjórnun, fjármálum eða tækni.

Eitt af áhugamálum Jóns Þórs var að aðstoða Eystrasaltslöndin við að smíða og reka upplýsingkerfi sem hann lagði mikla rækt við fyrst sem forstjóri Skýrr og síðar sem ráðgjafi.

Jón Þór var formaður Skýrslutæknifélagsins frá 1979-1982 og var ætíð mikill stuðningsmaður félagsins og stuðlaði að framþróun félagsins. Skýrslutæknifélagði gerði Jón Þór að heiðursfélaga árið 2008.

Jón Þór var einn af þeim mönnum sem allir tóku eftir.  Hann var framsækin og fylgdist mjög vel með nýjungum í tækni og stjórnun og var stöðugt að máta þær hugmyndir við Ísland til að finna út hvað gæti komið að notum.  Að öðrum ólöstuðum þá er hann sennilega sá maður sem hafði einna mest áhrifa á þróun upplýsinatækni á Íslandi á 21 öld.

Skoðað: 2285 sinnum