Skip to main content

2011 UT-verðlaun Ský

Verðlaunahafi Upplýsingatækniverðlauna Ský 2011

Reiknistofa bankanna - Í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni í 38 ár

Reiknistofa bankanna hlýtur upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélags Íslands (Ský) árið 2011. Það var forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti verðlaunin í morgun á UT messunni sem nú stendur yfir og mun ljúka með sýningu fyrir almenning í húsnæði HR í Öskjuhlíð á morgun. Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB tók við verðlaununum.

Í greinargerð valnefndar verðlaunanna kemur fram að Reiknistofa bankanna (RB) hafi í 38 ár verið leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið hafi séð Íslendingum fyrir greiðsluþjónustu sem hefur gert viðskipti fyrirtækja og einstaklinga hagkvæm, skjót og örugg. Sem dæmi um mikilvægi fyrirtækisins fyrir Ísland er nefnt að grunnkerfi RB og starfsfólk fyrirtækisins hafi átt stóran þátt í að tryggja landsmönnum eðlilega greiðslumiðlun haustið 2008 þegar íslenska bankakerfið fór á hliðina.

Reiknistofa bankanna hefur svo sannarlega lifað tímana tvenna í upplýsingatækni. Meðal stærstu verkefna sem fyrirtækið hefur sinnt má nefna myntbreytinguna 1981, tölvutengingu allra banka, sparisjóða og afgreiðslustaða frá 1986, breytingu tölvukerfa vegna 2000-vandans, innleiðingu innheimtuþjónustu sem gerir kleift að greiða viðskiptakröfur beint í netbanka og innleiðingu birtingarkerfis sem gerir dreifingu rafrænna viðskiptaskjala til almennings auðvelda.

Reiknistofa bankanna rekur eitt flóknasta tölvukerfi landsins, en um það fara t.d. allar greiðslur inn og út af bankareikningum landsmanna. RB hefur að mati valnefndar leikið lykilhlutverk í innleiðingu debetkorta og útrýmingu tékkaviðskipta. Að auki hefur fyrirtækið stuðlað að því að verulega hefur dregið úr pappírsnotkun á landinu með því að gera rafræna birtingu á greiðsluseðlum, yfirlitum, lykilorðum, launaseðlum og öðrum viðskiptaskjölum mögulega.

„RB er svo sannarlega vel að þessum verðlaunum komið, enda starfað ötullega að þróun og nýtingu upplýsingatækni á Íslandi í hartnær fjóra áratugi. Fyrirtækið er jafnan ekki ofarlega í hugum almennings, en starfsemi þess er engu að síður ómissandi þáttur í lífi okkar allra,“ segir Arnheiður, framkvæmdastjóri Ský.

Þetta er í annað sinn sem Upplýsingatækniverðlaun Ský eru afhent, en á síðasta ári hlaut Friðrik Skúlason verðlaunin.

----

Í valnefnd verðlaunanna voru Guðbjörg Sigurðardóttir og Sigurjón Pétursson, heiðursfélagar Ský, Friðrik Skúlason, UT-verðlaunahafi Ský 2010, Ebba Þóra Hvannberg frá HÍ, Bjarni Már Gylfason frá Samtökum iðnaðarins, Eggert Claessen frá Frumtaki, Hjörtur Grétarsson úr stjórn Ský og Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský.