Skip to main content

2015 UT-verðlaun Ský

Verðlaunahafi Upplýsingatækniverðlauna Ský 2015

Hjálmar Gíslason

HjalmarGislasonHjálmar Gíslason fékk sjöttu UT-verðlaun Ský á UTmessunni í Hörpu 6. febrúar 2015.

Hjálmar Gíslason er frumkvöðull, eðlisfræðingur, forritari og hefur ástríðu fyrir tækni. Hann er einnig blaðamaður, bloggari, fjárfestir, eiginmaður og faðir. Hjálmar hefur stofnað fjögur tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki og má því segja að hann sé raðfrumkvöðull. Hann starfar nú hjá Qlik en var áður framkvæmdastjóri Datamarket sem Qlik keypti í desember 2014.

Hjálmar stofnaði netfyrirtækið Datamarket árið 2008 en starfaði þar á undan sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Símanum. Hann kom að þróun símaskrárvefjarins Já.is og hefur í gegnum tíðina stofnað nokkur hugbúnaðarfyrirtæki: Spurl ehf (sem m.a. smíðaði leitarvélina Emblu), Maskina (sem er í dag í eigu nokkurra Norðmanna) og Lon&Don (sem sameinaðist Gagarín). Hjálmar hefur einnig setið í stjórnum Tals og Trackwell.

Rökstuðningur dómnefndar:

Hjálmar er góð fyrirmynd og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af upplýsingatækni. Hann er framsýnn og hefur sterka tilfinningu og framtíðarsýn fyrir tækni og þróun. 

Með sölu á Datamarket til Qlik sýndi Hjálmar að hann er ekki aðeins frábær frumkvöðull sem fundið hefur hugmyndum sínum farveg, heldur er hann einn af allt of fáum sem hafa kunnáttu, þrautseigu og getu til að fylgja hugmynd eftir alla leið til enda með góðri sölu til stærra og öflugra fyrirtækis og þannig tryggt enn betur framgang hennar.

Hjálmar hefur alltaf verið opinn fyrir því hvernig nýta má upplýsingatækni til að bæta samfélagið. Ekki bara í hefðbundum skilningi, þ.e. innan fyrirtækja og stofnana heldur líka þegar kemur að því hvernig við ákveðum saman í hvernig þjóðfélagi við viljum búa í. Frábært dæmi um slíkt er framtak hans tengslum við Betri Reykjavík. Hjálmar er bængóður með eindæmum og hefur m.a. átt stóran þátt í að Tölvuorðasafn Skýrslutæknifélagsins var sett á vefinn í samstarfi við Spurl og Já.is. Datamarket gegndi mikilvægu samfélagslegu hlutverki á Íslandi svo sem með því að miðla upplýsingum á borð við tölfræði úr fjárlögum til almennings á netinu með myndrænum og auðskiljanlegum hætti. Einnig hefur Hjálmar stuðlað að opinni og upplýstri umræðu um menn og málefni, svo eitthvað sé týnt til.

Hjálmar er vel að þessum verðlaunum kominn og óskum við honum til hamingju með heiðursverðlaunin og megi framtíðin vera björt.

Verðlaunagripurinn er glerlistaverk eftir Ingu Elínu listakonu og afhenti Eggert Claessen verðlaunin að viðstöddum um þúsund gestum UTmessunnar. Þar sem Hjálmar býr erlendis tók hann að sjálfsögðu á móti verðlaununum með tölvutækninni en hann talaði til gesta í gegnum videó sem hann sendi inn.

3318

Um UT-verðlaunin:
Heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin og eru þau að danskri fyrirmynd. Veiting þeirra er árleg frá árinu 2010. Hægt er að tilnefna einstakling, fyrirtæki eða verkefni sem hefur skarað framúr á sviði upplýsingatækni, skapað verðmæti og auðgað líf Íslendinga með hagnýtingu á upplýsingatækni. Áhersla er lögð á að framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti.