Skip to main content

Atvinnumál einhverfra

Atvinnumál einhverfra í upplýsingatækni
Umsjónarfélag einhverfra í samvinnu við Ský heldur
Hádegisverðarfund á Grand Hótel föstudaginn 16. janúar nk. kl. 12 – 14


Í tilefni af útgáfu heimildarmyndarinnar „Sólskinsdrengurinn“ mun SKÝ ásamt Umsjónarfélagi einhverfra og aðstandendum myndarinnar standa fyrir hádegisverðarfundi um stöðu einhverfra í atvinnulífinu. Aðal fyrirlesari verður danski frumkvöðullinn Thorkil Sonne en hann hefur hlotið heiðursverðlaun danska Upplýsingatæknifélagsins á árinu 2008 fyrir störf sín í þágu einhverfra. Thorkil hefur með góðum árangri nýtt, þjálfað og skapað verðmæt störf fyrir fólk með einhverfu í upplýsingatækni. Mikill fengur er, sérstaklega nú í kreppunni, að fá einstakling sem finnur tækifæri þar sem aðrir sjá aðeins vandamál. Hann kemur fram í íslensku heimildarkvikmyndinni Sólskinsdrengurinn sem frumsýnd verður 9. janúar 2009.

Dr. Evald Sæmundsen sviðstjóri fagsviðs einhverfra á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins útskýrir mikla breidd einhverfurófsins, styrkleika, veikleika og greind. Á síðustu tveimur árum hafa greinst vel á þriðja hundruð einstaklinga með einhverfu á Íslandi. Þekking á einhverfu hefur aukist mikið síðastliðin ár, en með þekkingu og skilningi er hægt að auka lífsgæði einhverfra og nýta styrkleika þeirra í leik og starfi.

Árni Már Björnsson verkefnisstjóri hjá Vinnumálastofnun og umsjónarmaður með flutningi atvinnumála fatlaðra til Vinnumálastofnunar fer yfir mögulegan stuðning stofnunarinnar við einhverfa einstaklinga og við fyrirtæki. Stofnuninn er með ýmis úrræði sem hægt er að nýta sér til að koma af stað nýrri starfsemi.

Dagskrá
12:00 Skráning fundargesta
12:15 Setning fundarins og hádegisverður borinn fram
12:40 Dr. Evald Sæmundsen, kynning á einhverfurófi, sjá glærur
12:55 Thorkil Sonne, Specialisterne (kynning á ensku), sjá glærur
13:30 Árni Már Björnsson, stuðningur við atvinnuþátttöku, sjá glærur
13:45 Umræður
13:55 Fundi slitið

Fundarstjóri er Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar

Undirbúningsnefnd skipa: Hjörtur Grétarsson upplýsingatæknistjóri Reykjavíkurborgar og Magnús Hafliðason frá Símanum

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský og félagsmenn Umsjónarfélags einhverfa er 3.800 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 4.800 kr.

Skráðu þig núna með því að senda póst á sky@sky.is eða hringja í síma 553 2460.

Bestu kveðjur,
Skýrslutæknifélag Íslands
Engjateig 9
105 Reykjavík
www.sky.is
sky@sky.is

http://www.solskinsdrengurinn.is/myndin.html
http://www.einhverfa.is/myndir/Radstefna.netsending2.pdf
 
 

IMG 1392
IMG 1393
IMG 1394
IMG 1395
IMG 1396
IMG 1397
IMG 1398
IMG 1399
IMG 1400
IMG 1401
IMG 1402
IMG 1403
IMG 1404

  • 16. janúar 2009