Skip to main content

Aðalfundur Fókus

Kæru Fókusfélagar,

nú er komið að því að halda aðalfund Fókus og hann verður þann 24. nóvember kl. 16.15 á Grand hótel. 
Fundurinn verður haldinn í lok ráðstefnu um upplýsingatæknimál í heilbrigðisþjónustunni.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  • Setning fundar og kynning dagskrár
  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar félagsins um störf hans á liðnu starfstímabili
  • Starfsáætlun næsta starfsárs lögð fram
  • Breytingar á félagssamþykktum
  • Kosning formanns
  • Kosning annarra stjórnarmanna
  • Kosning í nefndir félagsins
  • Önnur mál

Stjórnarmenn hafa allir gefið kost á sér áfram til stjórnarsetu nema Bjarni Þór Björnsson í aðalstjórn. Kjósa skal um sæti hans til 2 ára og er hér með lýst er eftir framboði í hans sæti.  Tekið skal fram að öllum félögum er frjálst að bjóða sig fram til stjórnarsetu í hvaða sæti sem er.  

Ef einhver hefur tillögur um breytingar á félagssamþykktum er hann/hún beðinn um að senda þær til undirritaðrar hið fyrsta. 
Félagssamþykktir Fókus má sjá á vef Ský  www.sky.is

Vonast til að sjá sem flesta,

með kveðju,
Valgerður Gunnarsdóttir, formaður Fókus  



  • 24. nóvember 2009