Skip to main content

Mælikvarðar fyrir opinbera vefi

  Morgunverðarfundur um mælikvarða fyrir opinbera vefi, hvað vantar, hverju er ofaukið ?

 Staður og stund:  Grand hótel fimmtudaginn 25. mars kl. 8 - 10.

  

Mælikvarðar fyrir opinbera vefi, hvað vantar, hverju er ofaukið?

Morgunverðarfundur á Grand Hótel fimmtudaginn 25. mars kl. 8:00 – 10:00

Í framhaldi af hádegisfundi Ský um könnunina „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009“?  sem haldinn var 16. desember sl. efnir faghópur Ský um rafræna opinbera þjónustu til vinnufundar þar sem fjallað verður um mælikvarðana sem miðað hefur verið við. Fundinum er m.a. ætlað að svara eftirtöldum spurningum:

·         Hverjir eru helstu mælikvarðarnir í könnuninni?

·         Hvaða mælikvarðar eru umdeildir?

·         Hvaða mælikvarða vantar og hverjum er ofaukið?

·         Gefur innbyrðis vægi mælikvarðanna rétta mynd?

·         Getum við náð samstöðu um hvernig má endurbæta mælikvarðana eða mæliaðferðir til þess að bæta gæði kannananna?

Allir sem láta sig varða vefmál, bæði vefþjónustuaðilar og forsvarsmenn vefja, eru hvattir til þess að mæta á fundinn og taka þátt í því að gera mælikvarðana og þar með könnunina að sem bestu verkfæri til þess að bæta gæði opinberra vefja.

                              Dagskrá:

08:00 – 08:30     Húsið opnar, morgunverðarhlaðborð og spjall

08:30 – 08:35     Inngangur, tilgangur fundarins, meginniðurstöður könnunarinnar
                               Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti

08:35 – 08:50     Viðhorf framkvæmdaaðila
                               Jóhanna Símonardóttir, Sjá       

08:50 – 09:10     Viðhorf vefþjónustuaðila
                               Sigrún Eva Ármannsdóttir, Skýrr og Már Örlygsson, Hugsmiðjan

09:10 – 09:30     Viðhorf opinberra aðila
                               Hreinn Hreinsson, Reykjavíkurborg og Heiðar Örn Arnarsson, Sjúkratryggingar Íslands

09:30 – 10:00     Umræður og skoðanaskipti
                               Lögð er áhersla á virka þátttöku fundarmanna

10:00                     Fundi slitið

Fundarstjóri: Marta Kristín Lárusdóttir

Undirbúningshópur: Faghópur um rafræna opinbera þjónustu

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský  4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir nema á eigin vegum í Ský 3.000 kr. (gegn framvísun skólaskírteinis 2010)

 



  • 25. mars 2010