Skip to main content

Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum

 

Hádegisfundur á Grand hótel 20. september kl. 11:30-14

"Ávinningur og upplifun af rafrænum viðskiptum"

 
Mikil og góð þróun hefur átt sér stað hérlendis við innleiðingu rafrænna viðskipta undanfarna mánuði. Flest öll hugbúnaðarfyrirtæki eru komin með lausnir og mörg stór og lítil fyrirtæki ásamt stofnunum eru farin að nýta sér þessa tækni og ná fram ávinningi af nýtingu hennar.

Gert er ráð fyrir að fara yfir á mannamáli á fundinum hverju við höfum áorkað, hvert stefnt er með innleiðingu og hvaða vandamál/verkefni þarf að leysa til að Ísland nái aftur ásættanlegri stöðu í samanburði við Evrópuríki.

 

Dagskrá: 

11:30-12:25      Afhending gagna og hádegishlaðborð

                          Þjónustuaðilar rafrænna viðskipta verða til spjalls og ráðagerða

 

12:25-12:35     Fundur settur
                          Hjörtur Þorgilsson, formaður Icepro

12:35-12:45     Staða og stefna ríkisins við innleiðingu rafrænna viðskipta
                           Helga Jónsdóttir, ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu

12:45-12:55      Ávinningar Reykjavíkurborgar við innleiðingu rafrænna viðskipta
                           Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

12:55-13:35      Reynslusögur:

                             N1, Kristján Gunnarsson
                              Rekstrarvörur, Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir
                              Hafnarfjarðarbær, Guðmundur Ragnar Ólafsson

 13:35-13:50     Evrópa á mikilli siglingu
                           Bergþór Skúlason, sérfræðingur, National IT and Telecom Agency
                           Ministry of Science, Technology and Innovation

13:50-14:00      Fundarlok  og spjall

Fundarstjóri: Hjörtur Þorgilsson, formaður ICEPRO


Matseðill
: Hlaðborð með baguettes og tortillum. Gos / kaffi / te.

Aðilum sem veita þjónustu á sviði rafrænna viðskipta er boðið að kynna þjónustu/vörur sínar á meðan fólk er að skrá sig inn og borða, þ.e. frá kl. 11:30 – 12:25.  Þegar hafa Skýrr, sendill.is, Dynax, InExchange og Maritech tilkynnt að þau verði með sýningarbás.  Það er um að gera að mæta tímanlega og heyra í sérfræðingunum.

Undirbúningsnefnd:  Sigrún Gunnarsdóttir frá Maritech, Hjörtur Grétarsson frá Reykjavíkurborg, Hjörtur Þorgilsson formaður ICEPRO.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar  3.000 kr.
 


Avinningur rafr vidsk 01
Avinningur rafr vidsk 02

  • 20. september 2011