Skip to main content

Hugbúnaður og þróun fyrir snjallsíma

Hádegisfundur á Grand hótel 4. október kl. 12-14

"Hugbúnaður og þróun fyrir snjallsíma"

 

Mikil gerjun er á farsímamarkaði. Snjallsímar eru að ná yfirhöndinni og mörkin á milli farsíma og tölvu eru að hverfa. Stýrikerfi snjallsíma eru í stöðugri þróun, nýir tækja- og stýrikerfaframleiðendur komnir  á markaðinn og sumir af þeim eldri að gefa eftir.

- Hvernig er staðan í dag og hvernig er líklegt að þróunin í snjallsímaheiminum verði?
- Hvað er að gerast á Íslandi í þróun á hugbúnaði fyrir snjallsíma?
- Eru vefsvæði landsins tilbúin að taka við aukinni umferð frá snjallsímum?
- Hvað þarf að hafa í huga í notendaskilum á vefjum til að geta birt efni fyrir ólíkan endabúnað?
- Eru miðlægar „app verslanir“ bölvun eða blessun?

Þessum og fleiri spurningum verður leitast við að svara á þessum fundi.

Dagskrá:

11:50-12:05         Afhending gagna

12:05-12:20        Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:35         Snjallsímar
                              Árni Matthíasson, Morgunblaðið

12:35-12:55         Vefurinn vafraður múslaust í gegn um skráargat:
                             Markhópurinn lögblindir, hreyfihamlaðir og óþolinmótt fólk með farsíma
                              Már Örlygsson, Hugsmiðjan

12:55-13:15         Íslandsbanki og snjallsímalausnir
                              Valur Þór Gunnarsson, Íslandsbanki

13:15-13:35         Tölvuleikir fyrir snjallsíma
                              Jónas Óskar Magnússon og Viggó I. Jónasson, Fancy Pants Global

13:35-13:55         Eru miðlægar "app" verslanir bölvun eða blessun?
                              Guðjón Pétursson, Eplakort
                 

13:55-14:00        Fundarlok

Fundarstjóri: Árni Mattíasson frá Morgunblaðinu

Matseðill: Nauta-burritos með grænmeti, salati, nachos og tilheyrandi sósum. Konfekt / kaffi /te
Undirbúningsnefnd:  Einar Haukur Reynis frá Símanum, Már Örlygsson frá Hugsmiðjunni, Guðjón Pétursson frá Eplakortum og Magnús Hafliðason fá Ský

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar  3.000 kr.
 


Hugb snjallsima 01
Hugb snjallsima 02
Hugb snjallsima 03
Hugb snjallsima 04
Hugb snjallsima 05
Hugb snjallsima 06

  • 4. október 2011