Skip to main content

Frá vöggu til grafar

Hádegisverðarfundur á Grand hóteli þann 8. nóvember kl. 12-14

Frá vöggu til grafar - Sjónarhóll notenda í rafrænum heimi  

 

Opinber þjónusta á Íslandi hefur um langt skeið fengið lága einkunn í innlendum og erlendum könnunum og erum við til dæmis meðal þeirra neðstu í nýlegri könnun sem ESB lét gera.

En hvað segja notendur? Er þeirra upplifun í samræmi við niðurstöður kannana? Faghópur um rafræna opinbera þjónustu ákvað að kanna málið.

Á fundinum flytja nemendur úr HR niðurstöður eigin greininga á opinberri þjónustu, kennari þeirra tekur saman niðurstöðurnar og ber saman við kannanir, notendur segja reynslusögur og að lokum er reynt að draga saman heildarmyndina og varpa ljósi á raunveruleikann.

                    Dagskrá:

11:50-12:00    
Afhending gagna

12:00-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram
                         Marta Kristín Lárusdóttir, Háskólanum í Reykjavík

12:20-12:50   Sjónarhóll notenda
                         Nemendur í HR kynna niðurstöður sínar á rafrænni þjónustu opinberra aðila
                         
Helga Guðmundsdóttir,  Ragnar Ævar Jóhannsson og Jóra Jóhannsdóttir


12:50-13:05   Ber niðurstöðum 40 nemenda saman við aðrar kannanir?
                         Eggert Ólafsson, Reykjavíkurborg/HR

13:05-13:20   Reynslusaga: Fæðingarorlof
                         Ólafur Sverrir Kjartansson, Skýrr

13:20-13:35    Reynslusaga: Andlát  
                          Ásdís Elvarsdóttir

13:35-13:55     Þjónusta opinberra aðila, hvað er málið?
                          Haraldur Bjarnason, Auðkenni

Fundarstjóri: Marta Kristín Lárusdóttir, Háskólanum í Reykjavík

Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps um rafræna opinbera þjónustu

MatseðillÞorskhnakki með cítruskryddhjúp á vorlaukskartöflumauki. Kaffi / te og konfekt á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.



  • 8. nóvember 2011