Skip to main content

Netsía fyrir Ísland

Hádegisverðarfundur 20. mars á
Grand hóteli kl. 12 - 14

"Netsía fyrir Ísland: Vænleg leið til að stemma stigu við klámi og óværum?"

Twitter: @SkyIceland #Netsia

Ath. á undan fundinum verður aðalfundur öryggishóps á sama stað.

Innanríkisráðherra hefur falið starfshópi að kortleggja úrræði lögreglu vegna dreifingar kláms á Netinu og gera tillögur að breytingum. Bent hefur verið á að klámnotkun hafi færst í aukana hér á landi en lítið hefur farið fyrir umræðu um hvaða leiðir séu tæknilega færar til að stemma stigu við aðgangi á Netinu að klámi eða öðru efni sem talið er ósækilegt.

Mikilvægt er að tæknifólk, netveitur, hýsingarfyrirtæki og þær opinberu stofnanir sem hafa með þessi málefni að gera komi að umræðu um til hvaða úrræða sé raunhæft að grípa í þessum efnum.
Öryggishópur Ský stendur fyrir hádegisfundi um þetta málefni. Fundurinn er öllum opinn en það þarf að skrá sig á hann fyrirfram.

Dagskrá: 

11:50-12:05  Afhending gagna

12:05-12:15  Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:15-12:35  Eiga stjórnvöld að fjalla um klám?
                    Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra

12:35-12:55  Er þetta tæknilega framkvæmanlegt?
                    Theódór R. Gíslason, Syndis

12:55-13:15  Að sópa soranum undir teppið
                    Bjarni Rúnar Einarsson, The Beanstalks Project

13:15-13:35  Áhrif netlokunar á nýsköpun
                    Torfi Frans Ólafsson, CCP

13:35-14:00 Umræður og fundarslit

FundarstjóriSvana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Stika og formaður Samtaka iðnaðarins

Undirbúningsnefnd: Hörður Helgi Helgason – Landslög, Sigurður Másson – Advania og Kristján Valur Jónsson – OZ

MatseðillPönnusteikt lúða með hvítvínssósu, rækjum og fetaosti.
Kaffi/te og konfekt á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr

 


20130320 121718
20130320 121720
20130320 121752
20130320 121757(0)
20130320 121757

  • 20. mars 2013