Skip to main content

Á íslenska sér framtíð í tölvuheiminum?

 Hádegisfundur 8. maí kl. 12-14 á Grand hóteli


„Á íslenska sér framtíð í tölvuheiminum?“

Twitter umræður: @SkyIceland #islenska

 

Sprenging er að verða í efni og lausnum sem Íslendingar hafa aðgang að á netinu.  Það er sífellt stærri ögrun fyrir Íslendinga að eiga samskipti við tölvur og nálgast allt þetta efni á móðurmáli sínu. Fleiri þjóðir og tungumálasvæði standa frammi fyrir sama verkefni.

Á Íslandi er hópur einstaklinga sem hefur látið sig mál þetta varða. Á hádegisfundi Ský munum við fá innsýn í verkefni og verkfæri sem gerð hafa verið til að auðvelda okkur það að eiga samskipti við tölvur á íslensku. 

Á fundinum verður leitast við að gefa yfirlit yfir íslensk máltækniverkefni.

Einnig verður 5. útgáfa Tölvuorðasafns Orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands opnuð formlega á fundinum.

Fundurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á varðveislu íslenskrar tungu og samskiptum manns og tölvu.

Dagskrá:

11:45-12:00  Afhending ráðstefnugagna

12:00-12:20  Fundur settur – matur borinn fram

12:15-12:40  Ávarp og formleg opnun 5. útgáfu Tölvuorðasafns
                 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

Kynning á 5. útgáfu Tölvuorðasafnsins
Sigrún Helgadóttir, orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands

Kveðja til orðanefndar
Sigrún Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Ský

12:40-13:00 Settu ríplætúol á meilið og séséaðu á mig
                 Eða gætum við kannski talað um tölvur á íslensku?
                     Haraldur Bernharðsson, Íslenskri málnefnd

13:00-13:20  Opin málföng í þágu fyrirtækja og almennings
                     Eiríkur Rögnvaldsson, Háskóla Íslands

13:20-13:40  Talgreining á íslensku
                 Er samstarf við Google nóg eða eigum við að ráða þessu sjálf?
                     Jón Guðnason, Háskólanum í Reykjavík

13:40-14:00  Hvaða þýðingu hefur máltækni fyrir atvinnulífið?
                     Garðar Þ. Guðgeirsson, Tryggingamiðstöðinni

14:00         Fundi slitið

Fundarstjóri: Hjörtur Grétarsson, stjórn Ský

MatseðillHunangsgljáð kalkúnabringa með ávaxta- og ostafyllingu, rauðlauks confit og supremesósu.
Kaffi/te og konfekt á eftir.

Verð fyrir félagsmenn Ský:  4.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Verð fyrir fólk utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.


20130508 122537 1
20130508 122632 1
20130508 122647
20130508 122654
20130508 122712
20130508 123952
20130508 123956
20130508 123958
20130508 124027
20130508 124029

  • 8. maí 2013