Skip to main content

Videó á vefinn, hvað svo?

Hádegisfundur á Grand hóteli
29. október 2014 kl. 12-14

“Videó á vefinn og hvað svo?”

Twitter: @SkyIceland #VideoVef

 

Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar eru í auknum mæli farin að nota myndbönd til að koma vörum sínum og þjónustu á framfæri á vefnum. En það er að ýmsu að hyggja áður en ráðist er í þessa vinnu.

Á þessum hádegisfundi leitumst við að svara spurningum á borð við hvers vegna og hvenær ættu fyrirtæki/stofnanir/einstaklingar að nota myndbönd á netinu? Hvers virði er að gera gott myndband með tilliti til t.d. mörkunar, samfélagsmiðla og leitarvélabestunar? Videó á vefinn og hvað svo?

Dagskrá:

11:50-12:05   Afhending gagna

12:05-12:20   Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40   Myndefni - sem bætir og kætir
                       Einar Ben, Tjarnargatan

12:40-13:00   Þurfum við ekki að vera með video?
                       Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV

13:00-13:20   Efnismarkaðssetning/Content marketing – Er fyrirtækið þitt að  taka þátt?
                       Magnús Magnússon, Íslenska auglýsingastofan

13:20-13:40   ÍSB TV – Ég bjó til myndband, hvað svo?
                        Hjalti Rögnvaldsson, Íslandsbanki

13:40-14:00   Umræður 

14:00             Fundarslit

Fundarstjóri: Þóranna K. Jónsdóttir, Markaðsmál á mannamáli

Undirbúningsnefnd:  Faghópur um vefstjórnun

Matseðill: Ostagljáð sinnepskryddhjúpuð laxasteik með vorlauks byggotto og paprikusósa. Konfekt / kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.


20141029 123614
20141029 123633
20141029 123646
20141029 124913
20141029 124918
20141029 131933(0)
20141029 131933
20141029 132907
20141029 132914
20141029 132921

  • 29. október 2014