Skip to main content

Heilbrigðisráðstefnan

Heilbrigðisráðstefnan Á GRAND HÓTELI
Miðvikudaginn 17. febrúar  kl. 13 - 16

"Er heilbrigðiskerfið tilbúið fyrir rafræna framtíð" 

Á síðustu árum hafa sprottið fram tækninýjungar sem auðvelda almenningi að fylgjast með eigin heilsu. t.d. með því að safna ýmsum heilsufarsmælingum, skrá hreyfingu og aðrar mikilvægar upplýsingar er tengjast lífsstíl. Oft á tíðum eru þetta upplýsingar sem gætu verið gagnleg viðbót við sjúkraskrá einstaklingsins. Á sama tíma hefur sú krafa orðið háværari um allan heim að einstaklingar geti haft auðveldan aðgang að sjúkraskrá sinni og átt samskipti við heilbrigðiskerfið með rafrænum hætti. 

Hvernig er heilbrigðiskerfið búið undir þessar breytingar? Hvaða möguleikar standa einstaklingum nú til boða? 

Þessum spurningum og mörgum öðrum verður leitast við að svara á Heilbrigðisráðstefnu Fókus.

12: 45   Afhending gagna

13:00    Setning - Opnunarávarp
            Að lifa af umbreytingu í stafrænan heim
             Ólafur Andri Ragnarsson, adjúnk við Háskólann í Reykjavík, frumkvöðull, fjárfestir og stjórnarmaður

13:20   Heilsugæsla á tímamótum
             Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

13:40   Betri svefn – grunnstoð heilsu 
             Erla Björnsdóttir, sálfræðingur, Betri svefn

14:00   Patient access to healthcare data - A Global movement
             Julian Ranger, Digi me

14:20    Kaffihlé

14:50   HappApp - andleg heilsuefling í appi
             Helga Arnardóttir höfundur HappApp

15:10    Leikjavædd heilsuefling fyrir fyrirtæki og heilbrigðiskerfi
             Erlendur Egilsson, þróunarstjóri hjá Sidekick Health

15:30    Samband sjúklings og læknis á nýrri öld
             Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala

15:50    Fyrirspurnir

16:00    Ráðstefnuslit

Ráðstefnustjóri: Ásta Thoroddsen 

Undirbúningsnefnd: Fyrir hönd stjórnar faghópsins Fókus; 
Anna Hafberg - TM Software, Birna Björg Másdóttir - LSH, Erla Björnsdóttir – Sak, Guðjón Vilhjálmsson - TM Software, Ingvar Hjálmarsson - Nox Medical og Lilja Björk Kristinsdóttir - Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 10.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 15.900 kr.



  • 17. febrúar 2016