Skip to main content

Innri vefir

Hádegisfundur á Grand hóteli 
28. september kl. 12-14

"Innri vefir þurfa ást og umhyggju"

Twitter: @SkyIceland #InnriVefir

Mikil þróun og endurnýjun hefur átt sér stað að undanförnu þegar kemur að lausnum er að varða innri samskipti hjá fyrirtækjum og stofnunum. Síðustu misserin hafa ýmsar lausnir komið fram hjá fyrirtækjum og stofnunum til að bæta innri samskipti og markaðsetningu. Bæði hafa samfélagsmiðaðir innri vefir litið dagsins ljós á meðan flestir fara ennþá hefðbundnari leiðir þegar kemur að innri vefjum.

Hver sem lausnin er þá eiga allir innri vefir það sameiginlegt, að til þess að þeir vaxi og dafni þurfa þeir ást og umhyggju. 

Á þessum hádegisfundi munum við heyra fjögur mismunandi innlegg frá aðilum sem allir hafa reynslu af innleiðingu og viðhaldi af innri vefs lausnum.

Dagskrá:

11:50-12:00  Afhending gagna

12:00-12:20  Hádegishlaðborð fyrir framan Gullteig
                       - tengslanetið eflt í leiðinni

12:20-12:40  Frá Esju til Orion
                       Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, Háskólinn í Reykjavík

12:40-13:00  Hvernig Flugan hóf sig á loft
                    - samfélagsmiðaður innri vefur sem hluti af innri markaðssetningu
                       Heiðar Örn Arnarson , Isavia

13:00-13:20  Innri vefur á krossgötum
                       Selma Svavarsdóttir, Landsvirkjun

13:20-13:40  Innleiðing Facebook@work og lærdómskúrfan
                       Ólafur William Hand, Eimskip

13:40-14:00  Pallborðsumræður með fyrirlesurum        

14:00             Fundarslit

Fundarstjóri: Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Hvíta húsinu
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um vefstjórnun

Matseðill: Hlaðborð að hætti Grand. Sætindi / kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.


20160928 114331
20160928 121731
20160928 132300
20160928 133941
20160928 134702
20160928 134712
20160928 134750
20160928 134803
20160928 134834
20160928 134840
20160928 141727
FB IMG 1475070132030

  • 28. september 2016