Skip to main content

Öryggismál

Hádegisfundur á Grand hóteli 
18. október kl. 12-14

"Veður og vindar í öryggisheimum"

Twitter: @SkyIceland #OryggisVedur

Á fundinum verður farið yfir nýjar og auknar áherslur á netöryggi í Evrópu, hvernig bregðast skuli við öryggisatvikum, að hverju ber að huga við gerð öryggisstefnu og einskonar veðurfréttir um þær öryggisógnir sem helst steðja að okkur í dag. 

Dagskrá:

11:50-12:05       Afhending gagna

12:05-12:20      Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40      Nýjar og auknar áherslur á netöryggi í Evrópu
Erindið fjallar um glænýja stefnu Evrópusambandsins um netöryggi og ýmsar aðgerðir sem verið er að ráðast í til að efla netöryggi innan álfunnar og munu einnig hafa áhrif á Íslandi.
Sigurður Emil Pálsson, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti/Netöryggisráð

12:40-13:00     Veður og vindur í öryggisheimum
Einskonar veðurfréttir um þær öryggisógnir sem helst steðja að okkur í dag og hvað við getum gert til að bregðast við þeim.
Svavar Ingi Hermannsson, Security.is

13:00-13:20   Viðbrögð við netglæpum
Fjallað um hvernig bregðast skuli við öryggisatvikum, hvert ber að snúa sér.
Daði Gunnarsson, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

13:20-13:40     Öryggisstefna
Það sem áður var viðfangsefni annarra er nú orðið mitt.
Guðmundur Stefán Björnsson, Sensa

13:40-14:00      Umræður 

14:00                Fundarslit

Fundarstjóri: Vera Sveinbjörnsdóttir, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
Undirbúningsnefnd:  Stjórn faghóps Ský um öryggismál
Matseðill: Djúpsteiktur þorskur borinn fram með frönskum, salati og tartarsósu. Sætindi / kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.


20171018 122655
20171018 123326
20171018 124938
20171018 133552

  • 18. október 2017