Framtíð fjarskipta á Íslandi hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og mikið rætt um 5G uppbyggingu. Á þessum hádegisfundi fáum við innsýn í stöðuna á Íslandi í dag, hverjar þarfir samfélagsins eru ásamt áhugaverðu spjalli stjórnvalda og forstjóra fjarskiptafyrirtækja um þeirra sýn á uppbyggingu fjarskipta til framtíðar á Íslandi.
Áhugafólk um fjarskipti á almennum nótum er hvatt til að koma.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:05 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20 Opnunarávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra
12:30 Reglugerðarumhverfi fjarskipta til framtíðar
Hrafnkell V. Gíslason, Póst og Fjarskiptastofnun
12:55 Kröfur til fjarskipta innan sveitarfélaga
Óskar J. Sandholt, Reykjavíkurborg
13:20 Pallborðsumræður
Umræður með forstjórum fjarskiptafélaga á Íslandi og fulltrúa stjórnvalda.
Heiðar Guðjónsson, Sýn, Orri Hauksson, Síminn, Sæmundur E. Þorsteinsson, Fjarskiptasjóður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Edda Hermannsdóttir, Íslandsbanka
Ský - Skýrslutæknifélag Íslands (The Icelandic Computer Society)
480870-0189 | Engjateigi 9 | 105 Reykjavík | 553 2460 | sky@sky.is