Víða er kallað eftir nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Frumkvöðlar og væntanlegir notendur ráða ráðum sínum og hefjast handa. Stuðningur er í boði í formi ýmissa styrkja og nýsköpunarhraðla á hugmynda- og þróunarstigi en hvað gerist svo? Hvernig kemst nýsköpunarlausn í almenna notkun og verður að veruleika?
Á þessum viðburði lítum við til nýyfirstaðins heilbrigðismóts og skoðum ferilinn frá fjármögnun hugmyndar að innkaupum og rekstri ásamt því að heyra af NHS hraðlinum í Englandi. Við fáum kynningar á verkefnum sem fengu fjármagn úr fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til þess að auka nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Stefnt er á að fylgja þessum verkefnum eftir og taka stöðuna aftur á heilbrigðisráðstefnunni 24. febrúar 2021.
Dagskrá:
11:55 Opnað fyrir útsendingu
12:00 Fjárfesting í nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Íris Huld Christersdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
12:15 Nýsköpun og samkeppni – tækifæri og áskoranir innan reglna um opinber innkaup
Guðrún Birna Finnsdóttir, sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
12:30 Örkynningar á verkefnum sem fengu fjármögnun úr fjárfestingarátaki
12:45 NHS hraðallinn
Hvað er NHS hraðallinn (NHS Accelerated Access Collaborative)? Hvaða verkefni hafa verið unnin? Getum við lært af þessu á Íslandi?
Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri SAk
13:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Daníel Ásgeirsson, Landspítali
Tengill á útsendinguna sendur á skráða þátttakendur í tölvupósti áður en útsending hefst
Athugaðu junk/rusl/spam möppuna ef þú finnur ekki póstinn frá sky@sky.is
Ský - Skýrslutæknifélag Íslands (The Icelandic Computer Society)
480870-0189 | Engjateigi 9 | 105 Reykjavík | 553 2460 | sky@sky.is