Eignir fyrirtækis í hugbúnaðargerð - sköpun þeirra og verndun.
Á fundinum verða skoðaðar árangursríkar leiðir til að búa til hugbúnaðareignir á ýmsum sviðum. Vernd þessara eigna er mikilvæg og því verða nýjar og klassískar leiðir skoðaðar.
Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem áhuga hafa á gerð og verndun hugbúnaðar hvort sem um er að ræða forritara, hönnuði, lögfræðinga, eigendur eða stofnendur fyrirtækja á þessu sviði.
Dagskrá:
11:50 Húsið opnar
12:00 Fundur settur, hádegisverður borinn fram og tengslanetið styrkt
12:40 Ráðgjafafyrirtækið og hugverkið Margir sjá ekki tengslin á milli ráðgjafafyrirtækja og hugverka, því ráðgjafafyrirtækið starfar jú við ráðgjöf. Hins vegar fæðast hugverk í hverju horni ráðgjafafyrirtækja. Mikilvægt er að gera eins mikið úr þessum hugverkum og hægt er, bæði frá sjónarhóli arðsemi fyrirtækja og frá sjónarhóli þjónustustigs við viðskiptavini. Hvernig geta ráðgjafafyrirtæki betur gripið, verndað og nýtt sér þessi hugverk?Guðrún Ólafsdóttir, sviðsstjóri Consulting hjá Deloitte á Íslandi
13:00 Arkio - frá hugmynd að hugverki Sköpun hugverka er margslungið og oft óútreiknanlegt ferli. Sagt frá þróun Arkio, hugbúnaðar fyrir arkitektúrhönnun í sýndarveruleika.Hilmar Gunnarsson, stofnandi & framkvæmdastjóri Arkio
13:20 Nýjungar í hugverkavernd Vernd hugverkaréttinda í takt við öra tækniþróun. Vörumerki í sýndarveruleika og álitaefni tengd gervigreind og ChatGPT.María Kristjánsdóttir, lögmaður hjá Lex og framkvæmdastjóri GH Sigurgeirsson IP
13:40 Einkaleyfi - umsóknarferlið Hvers vegna erum við að fjárfesta í hugverkavernd. Hver eru skilyrði fyrir einkaleyfahæfi og hvað er einkaleyfahæft og hvað er ekki einkaleyfahæft. Er hugbúnaður einkaleyfahæfur?Guðmundur Reynaldsson, PhD, einkaleyfisfræðingur og eðlisfræðingur hjá Controlant
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Halldóra Guðlaug Steindórsdóttir, Executive Director hjá Íslandsbanka