Föstudaginn 12. maí verður stofnfundur faghóps um stafræna vörustýringu. Með stofnun þessa faghóps vilja stofnendur leggja grunn að virku þekkingarsamfélagi og samstarfsvettvangi innan geirans. Við hvetjum fólk innan og utan geirans, reynslubolta og þau sem eru áhugasöm eða jafnvel bara forvitin um stafræna vörustýringu að mæta.
Fundurinn er opinn öllum sem vilja kynna sér hópinn. Skráðir félagar í Ský geta gengið í faghópinn á staðnum eða eftir fundinn.
Dagskrá:
09:00 Fundur settur
10:00 Stofnfundi lokið
Undirbúningur: Sigrún Lára Sverrisdóttir, Ólafur Óskar Egilsson, Guttormur Árni Ársælsson, Heiðar Atli Emilsson, Snædís Zanoria Kjartansdóttir, Erla Rós Gylfadóttir, Inga Jessen, Kristjana Nanna Jónsdóttir
Tillaga að reglum faghóps Ský um stafræna vörustýringu
1.gr.
Stafræn vörustýring er faghópur innan félagsins Ský og starfar eftir reglum þess um faghópa.
2.gr.
Markmið faghópsins eru í samræmi við markmið móðurfélagsins og felast m.a. í:
Ský - Skýrslutæknifélag Íslands (The Icelandic Computer Society)
480870-0189 | Engjateigi 9 | 105 Reykjavík | 553 2460 | sky@sky.is