Skip to main content

Hádegisfundur um stjórnsýslu

Hádegisverðarfundur 29. ágúst 2006
Umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir
Grand Hótel, þriðjudaginn 29. ágúst n.k.


Nú er lokið tilraunaverkefnum á vegum forsætis- og félagsmálaráðuneytis sem fólust í að kanna hvernig og á hvaða sviðum auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. Verkefnin unnin voru af félagsmálaráðuneytinu og sveitarfélaginu Garðabæ.

Í stefnun ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007, Auðlindir í allra þágu,er fjallað um hvernig styrkja megi lýðræðislega stjórnarhætti með þeim möguleikum sem ný tækni býður upp á og stuðla að auknum gæðum í stjórnsýslunni. Ofangreindar tilraunir voru afar lærdómsríkar og á þeirra grunni hefur Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið mótað leiðbeiningar um hvernig hægt er að standa að auknu samráði og samskiptum milli opinberra aðila og almennings.

Á fundinum voru niðurstöður tilraunaverkefnanna og ofangreindar leiðbeiningar kynntar. Að auki var stutt innlegg frá samgönguráðuneyti og fleiri aðilum um reynslu þeirra á þessu sviði.

12:15    

Inngangsorð fundarstjóra

12:40

Tilraunir til samráðs við íbúa Garðabæjar með rafrænum hætti. -glærur-
Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri Garðabæjar.

12:55

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. - glærur-
Arnar Pálsson, sérfræðingur í félagsmálaráðuneyti.

13:10

Áform samgönguráðuneytis um aukið samráð.
Karl Alvarsson, skrifstofustjóri, samgönguráðuneyti.
Notkun og reynsla af vefspjalli hjá Tollstjóranum í Reykjavík. - glærur-
Björn Guðmundsson, vefstjóri hjá Tollstjóranum í Reykjavík.

13:20

Leiðbeiningar um notkun upplýsingatækni við samráð og samskipti milli opinberra aðila og almennings.
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti. -glærur-

13:35 

Umræður 

14:00     

Fundi slitið 


 

Fundarstjóri var Svana Helen Björnsdóttir formaður Ský og framkvæmdastjóri Stika ehf.


Á matseðlinum var:
Grillaðar kjúklingabringur með grænmetisrisotto og spínatsósu. Ístvenna með ferskum ávöxtum og baileysrjóma í eftirrétt.


26
27
28
29
ATB07-29 08 06 6

  • 29. ágúst 2006