Skip to main content

Útflutningur á upplýsingatækni

Upplýsingatæknin -  á leið úr landi?
Ráðstefna um útflutning og útrás íslenskra UT-fyrirtækja og verðmætasköpun á Íslandi á
Hótel Nordica 2. október 2007
 frá kl.13:00-16:00

Á ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins verður spurningunni um gildi íslenskrar upplýsingatækni á erlendum mörkuðum kastað fram. Forsætisráðherra mun setja ráðstefnuna en mörgum leikur forvitni á að vita raunverulega stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi vöxt íslenskrar upplýsingatækni.  Efni ráðstefnunnar höfðar til atvinnulífsins svo og stjórnsýslunnar og stuðningsumhverfi fyrirtækja.

Reynt verður m.a. að svara þessum spurningum:

    * Er íslensk upplýsingatækni markaðsvara erlendis?
    * Hvar liggja tækifærin í útflutningi á upplýsingatækni?
    * Kostir og gallar þess að þróa lausnir í upplýsingatækni á Íslandi?
    * Getur hugbúnaðargerð verið markaðsvara erlendis?
    * Hvernig getur íslenskur UT-iðnaður best vaxið?
    * Eru tækifærin á Internetinu?
    * Er hægt að læra af mistökum annarra? 

 

Dagskrá:

12:45 Skráning ráðstefnugesta
13:00 Orri Hauksson ráðstefnustjóri flytur inngangserindi
13:10 Geir Haarde forsætisráðherra mun setja ráðstefnuna
13:20 Sigrún Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Eskils flytur erindi um stöðu útflutningsmála  íslenskra fyrirtækja - glærukynning-
13:45 Friðrik Skúlason eigandi Frisk. Vandrataður vegur í 20 ár - glærukynning-
14:05 Sigurjón Pétursson framkvæmdastjóri flytur erindi um reynslu af þróunarvinnu Landsteina Strengs
14:25 Kaffihlé
14:45 Vilborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri Mentors segir frá samskiptum við fjárfesta, útflutningi, vexti og útrás hjá Mentor og kostina við að þróa hugbúnað á Íslandi - glærukynning-
15:05 Sævar Freyr Þráinsson framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans fjallar um stefnu, markmið og framkvæmd Skipta og Símans - Tækifæri íslenskra UT fyrirtækja erlendis - glærukynning-
15:25 Pallborðsumræður
Þátttakendur í pallborði eru:

    Frosti Bergsson fjárfestir og frumkvöðull á sviði UT
    Gísli Hjálmtýsson framkvæmdastjóri Brú Venture Capital
    Gunnlaugur Sigmundsson fjárfestir
    Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri CCP
    Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri Stika
    Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja
16:00 Fundarstjóri slítur ráðstefnunni með samantekt

Ráðstefnustjóri er Orri Hauksson stjórnarformaður Tæknivara ehf

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á sky hjá sky.is eða hringja í síma 553-2460

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 11.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er  19.900 kr.
Þátttökugjald fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis er 6.900 kr.

Í undirbúningsnefnd eru þau Svana Helen Björnsdóttir Stika, Sigrún Guðjónsdóttir Eskli og Jón Ingi Björnsson Trackwell.


01
02
03
04
05
06
07
08
09
10
11
12
13
14

  • 2. október 2007