Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009 ?
Staður og stund: Grand Hótel þannn 16. desember kl. 12 - 14
Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjúhundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf. framkvæmdi úttektina og er þetta í þriðja sinn sem slík úttekt er gerð. Markmiðið með úttektinni er að fá heildstætt yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði en einnig að auka vitund opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu. Kynntar verða helstu niðurstöður úttektarinnar.
Einnig verður fjallað um nýja könnun Evrópusambandsins og stöðu Íslands í evrópskum samanburði.
Að lokum verður sagt frá átaki sem skilaði vefjum stjórnarráðsins umtalsverðum árangri í könnuninni.
Dagskrá
12:00 Skráning þátttakenda
12:15 Fundur settur, hádegisverður borinn fram
Eggert Ólafsson, rekstrarstjóri
hjá Reykjavíkurborg
12:30 Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?Framkvæmd könnunar og niðurstöður
Jóhanna Símonardóttir og Áslaug
Friðriksdóttir, Sjá ehf
13:15 Framboð á rafrænni opinberri þjónustu í
Evrópu, könnun ESB/CapGemini
Halla Björg Baldursdóttir,
verkefnastjóri í rafrænni stjórnsýslu í forsætisráðuneyti
13:30 Hvernig má bæta opinbera vefi? Átak sem
skilar árangri
Björn Sigurðsson, vefstjóri
stjórnarráðsins í forsætisráðuneyti
13:40 Umræður og spurningar
14:00 Fundið
slitið
Matseðill : Pönnusteikt keila í möndluhjúp með hvítvínssósu, kaffi
og konfekt
Fundarstjóri:
Eggert Ólafsson
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 6.900 kr.
Þátttökugjald fyrir nema á eigin vegum í Ský gegn framvísun skólaskírteinis er 3.000 kr.