Skip to main content

Frosti Bergsson

Frosti BergssonFrosti Bergsson
Fæddur 21. júlí 1945

Frosti var gerður að heiðursfélaga á aðalfundi Ský þann 28. febrúar 2018 fyrir framlag hans til upplýsingatækni á Íslandi.

Frosti lauk prófi sem rafeindatæknifræðingur frá Tækniháskólanum í Arhus 1974. Hann hóf þá störf hjá Kristján Ó. Skagfjörð (KOS) hf. við að koma á laggirna tölvudeild. Tveim árum síðar var félagið komið með umboð fyrir Digital tölvur (DEC) og hann orðin deildarstjóri ört vaxandi deildar og aðal keppinauturinn var IBM.

Frosti setti sér snemma markmið sem byggist á þeirri sýn að tölvutækninn myndi hafa gífurleg áhrif á rekstur fyrirtækja og líf fólks almennt. Sem hluti af þeirri sýn var að geta boðið heildarlausnir sem hentuðu íslensku atvinnu lífi.

Íslenskir stafir á skjái og prenta var eitt þeirra verkefna sem þurfti að leysa og starfaði Frosti á vegum Skýrslutæknifélagssins m.a. í nefndum varðandi útfærslu á íslensku lykilborði og ASCII – kódun (7 bita).

Frosti stafaði hjá KOS til ársins 1984 en hóf þá að vinna fyrir Hewlett Packard sem opnaði útibú á Íslandi í maí 1985. Árið 1991 þá var útibúinu breytt í Íslenskt hlutafélag, HP á Íslandi hf. og síðar Opin Kerfi hf. 1995. Frosti varð Forstjóri félagsins og annar stæðsti hluthafi. Það var síðan skráð á Verðbréfaþing Ísland 1995 og var strax verðmætasta upplýsingatæknifyrirtækið í Kauphöllinni eða til ársins 2004. Þá var það afskráð þegar Kögun keypti öll hlutabréf í félaginu og hætti Frosti störfum fyrir félagið.

Frá 1995 til 2004 var Opin Kerfi mjög virkur fjárfestir á upplýsingatækni markaðnum og meðal félaga sem fjárfest var í má nefna : Tæknival hf., Teymi hf. ( Oracle á Íslandi ),

ACO hf., Skyrr hf. (Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavikurborgar), Element hf., Hugur hf., Þróun hf., AX hugbúnaðarhús hf., Grunnur Gagnalausnir hf., Hans Petersen hf., Columbus IT Parner A/S., Datapoint AB., VIRTUS AB og Enterprice Solution A/S.

Á þessum tíma breyttist félagið í OKG (Opin Kerfi Group) og urðu stæðstu dótturfélög þess : Skyrr hf. , félög í Svíþjóð sem voru sameinuð undir nafninu Kerfi A/B og síðan Opin kerfi hf. (HP umboðið).

Í dag eru Skyrr hf. og reksturinn í Sviþjóð hlut af Advania samsteypunni en Frosti keypti Opin Kerfi hf. til baka 2007 og hefur verið stjórnarformaður þess félags síðan.

Frosti var stjórnarformaður í flestum félögum sem tilheyrðu OKG en eftir 2004 þá stofnaði Frosti eigið Fjárfestingafélag F. Bergsson eignarhaldsfélag ehf. og hefur verið virkur fjárfestir t.d. má nefna: Invent Farma SL (Lyfjafyrirtæki á Spáni), Bílaumboðið Askja hf., Eik hf ( fasteignafélag), Humac hf.(Apple á Íslandi) og VBS fjárfestingabanki hf. Einnig hefur Frosti verið stjórnarformaður í Sjóvá hf. (2010 – 2011) og setið i nokkrum nefnum á vegum ríkisins svo sem Fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi og greiningu á samkeppnisstöðu Póst og Síma hf.