Skip to main content

Íslenskt Sveita Drauma Net

Ráðstefna um háhraða fjarskipti í dreifbýli
4. maí á Hótel Kea, Akureyri
frá kl. 9:30-15:45 
      
Skýrslutæknifélag Íslands stóð fyrir ráðstefnu á Akureyri föstudaginn 4. maí n.k. þar sem umfjöllunarefni var háhraða fjarskipti í dreifbýli.
Hluti íslensku þjóðarinnar hefur ekki kost á háhraða fjarskiptum en við sölu Símans ákvað ríkisstjórnin að verja hluta af söluandvirðinu til að bæta fjarskipti til íbúa í dreifbýlinu. Markmiðið með þessari ráðstefnu er að upplýsa um stöðu mála út frá sjónarhóli notenda, fjarskiptafyrirtækja og ráðamanna. Meðal fyrirlesara verða fulltrúar frá fjarskipta- fyrirtækjunum, fulltrúi frá fjarskiptasjóði, fulltrúar stjórnmálaflokkanna og fulltrúar notenda.
Markhópur ráðstefnunnar var fólk í fjarskiptageiranum, hagsmunaaðilar, ráðamenn og aðrir sem áhuga hafa á þessum málum.
Fjarskiptasjóður styrkti þessa ráðstefnu.

Dagskrá: 

09:30 Skráning þátttakenda
09:45 Ráðstefnustjóri setti ráðstefnuna
09:50 Bæjarstjóri Akureyrar, Sigrún Björk Jakobsdóttir, opnaði ráðstefnuna
10:00 Kynning á starfsemi Mílu ehf.
Eva Magnúsdóttir forstöðumaður hjá Mílu
10:20 Tæknilegir kostir til fjarskipta í sveitum - glærukynning -
Sæmundur Þorsteinsson forstöðumaður rannsóknardeildar Símans
10:40 Tæknilegur fyrirlestur frá Vodafone -glærukynning -
Pálmi Sigurðsson deildarstjóri burðarnets á tæknisviði Vodafone
11:00 WBS - Wireless Broadband System -kynningu ekki dreift-
Einar Kristinn Jónsson famkvæmdastjóri WBS
11:20 Gagnaflutningar, byggðamál og sjálfsögð þjónusta
Jóhanna Harðardóttir, blaðamaður í einkarekstri, Hvalfjarðarsveit
 
Erindið fjallaði um ótrygga þjónustu einkafyrirtækis í gagnaflutningum og áhrif þess á annan atvinnurekstur, og síðan um framtíðarskipulag sveitarfélaga og byggðastefnu í gagnaflutningum (t.d. Í staðardagskrá 21).
11:35 eSveit - glærukynning-
Hrund Pétursdóttir, B.Sc., Upplýsingatækni í dreifbýli ehf.
11:50 Sveitapiltsins draumur -glærukynning-
Unnsteinn Ingason framkvæmdastjóri,  Narfastöðum í Reykjadal
12:05 Hádegismatur
13:05 Ertu tengdur? Ungt fólk í dreifbýli á tímum sítengingar -glærukynning-
Kjartan Ólafsson lektor við Háskólann á Akureyri
Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri
13:25 Háhraðatengingar til allra landsmanna -glærukynning-
Friðrik Már Baldursson prófessor við Háskóla Íslands og stjórnarformaður stjórnar fjarskiptaráðs

Í Fjarskiptaáætlun sem Alþingi samþykkti vorið 2005 er sett fram það markmið að allir landsmenn sem þess óska skuli hafa aðgang að háhraðatengingum árið 2007. Fjarskiptasjóður sem stofnaður var með lögum nr. 132/2005 vinnur m.a. að þessu markmiði. Í erindinu verður gerð grein fyrir þeirri undirbúningsvinnu sem í gangi hefur verið og þeirri vinnu sem framundan er en fjarskiptasjóður stefnir að útboði á háhraðatengingum á þeim svæðum þar sem slík þjónusta er ekki boði á fyrri hluta þessa árs. Þá verður farið yfir helstu forsendur í væntanlegu útboði.
13:45 Pallborðsumræður
14:15 Kaffihlé
14:30 Framsókn
Huld Aðalbjarnadóttir
14:40 Frjálslyndi flokkurinn
Sigurjón Þórðarson
14:50 Íslandshreyfingin
Hörður Ingólfsson
15:00 Samfylkingin
Lára Stefánsdóttir
15:10 Sjálfstæðisflokkurinn
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
15:20 Vinstri grænir
Steingrímur J. Sigfússon
15:30 Spurningar og samantekt
15:35 Ráðstefnustjóri sleit ráðstefnunni
 

Ráðstefnustjóri var Eyþór Arnalds ráðgjafi í fjarskiptamálum.

Hádegisverðarmatseðill:
Kjúklingur, appelsína engifer, kókoshrísgrjón og chilli.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 9.900 kr.

Þátttökugjald fyrir námsmenn er 3.900 kr.


Fyrsta flug að morgni 4. maí frá RVK kl. 7:45
Tilboð í flugfargjald frá Flugfélagi Íslands, sjá hér.

Undirbúningsnefnd: Magnús Hafliðason, Bjarni Sigurðsson og Sæmundur Þorsteinsson

 


33
39
40
43
46
47
50
51
52
53
54
55
56
57
58

  • 4. maí 2007