Skip to main content

Rafræn opinber þjónusta

Ein af stóru áskorunum hins opinbera er mikil aukning nýbúa á Íslandi sem tala ekki íslensku og margar stofnanir og sveitarfélög þurfa að þjónusta vel. Á þessum hádegisfundi munu hinir ýmsu aðilar segja frá því hvernig þeir hafa eflt og bætt sína þjónustu með ýmsum lausnum.

Dagskrá:

11:50   Húsið opnar

12:00   Hádegisverður borinn fram og tengslanetið styrkt

Jón Gunnar Þórðarson
12:20   Íslenska með hreim er tákn um hugrekki!
Jón Gunnar Þórðarson mun fjalla um mikilvægi þess að Íslendingar temji sér í auknum mæli þolinmæði til að hlusta á fólk sem reynir að spreyta sig á íslensku með því að „bara hlusta,“ Lykilatriði í lærdómsferlinu er að æfa sig og þess vegna er kennslulausn á borð við Bara tala gríðarlega mikilvæg til þess að fólk öðlist sjálfstraust til að tala tungumálið. Bara tala er tæknilausn sem veitir lykil að samfélaginu. Á undanförnum mánuðum hefur Bara tala þróað starfstengt íslenskunám fyrir fjölda sveitarfélaga og opinbera vinnustaði. Jón Gunnar sýnir afraksturinn og segir frá því sem er framundan.
LinkedIn logo  Jón Gunnar Þórðarson, Bara tala
Íris Huld Christersdóttir
12:40   Hvernig veitum við betri opinbera þjónustu út frá þörfum notenda?
LinkedIn logo  Íris Huld Christersdóttir, Fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Kristín Arna Hauksdóttir
13:00   Hvernig er Vinnumálastofnun að efla þjónustu við innflytjendur?
Vinnumálastofnun hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á að efla þjónustu sína til innflytjenda á Íslandi til að koma til móts við þjónustuþarfir þeirra með því að auka tækifæri til að sækja þjónustu á erlendu tungumáli. Við hönnun og þróun á öllum þjónustuferlum stofnunarinnar er sérstaklega haft í huga að í auknum mæli eru þjónustunotendur stofnunarinnar af erlendum uppruna. Farið verður yfir þróun síðastliðinna ára á þeim þjónustum sem stofnunin býður upp á og þeim breytingum sem hafa orðið vegna breyttrar samsetningar á þjónustunotendum stofnunarinnar m.a. eftir yfirtöku á þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og sameiningu Fjölmenningarseturs og Vinnumálastofnunar.
LinkedIn logo  Kristín Arna Hauksdóttir, Vinnumálastofnun
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
13:20   
Í vinnslu
LinkedIn logo  Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Kara Connect
13:40   
Í vinnslu
LinkedIn logo   

14:00   Fundarslit

Safa Jemai
LinkedIn logo  Safa Jemai, Vikonnekt
Fundarstjóri




  • Félagsmenn Ský:     8.300 kr.
    Utanfélagsmenn:   14.900 kr.
    Félagar utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
  • Grilluð kjúklingabringa með bragðríkri sósu, smákartöflum og baunaspírum.
    Vegan: Grænmetis steikarpanna með tófú og jasmín hrísgrjónum.