Skip to main content

Stelpur og tækni (Girls in ICT Day)

stelpur og taekni

Stelpur og tækni dagurinn (Girls in ICT Day) haldinn í ellefta sinn á Íslandi 23. maí 2024. Dagurinn er haldinn víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.

Markmiðið með þessum degi er að kynna ýmsa möguleika í tækninámi sérstaklega fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar hafa að bjóða, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.

GirlsInICT



  • 23. maí 2024
  • kl. 9:00
  • Háskólinn í Reykjavík