Skip to main content

Nám í UT



Nám í Upplýsingatækni


Framhaldsskólar
Í framhaldskólum landsins er boðið upp á áfanga í upplýsingatækni og tölvunarfræði en framboð miðast við ásókn nemenda í viðkomandi áfanga. Sem dæmi um áfanga má nefna forritun, gagnasafnsfræði og vefsíðugerð. Nokkrir framhaldsskólarnir bjóða upp á nám á tölvubraut, upplýsinga- og fjölmiðlabraut og er í flestum skólum hægt að bæta við sig námi til stúdentsprófs eða sérhæfa sig í iðngrein að loknu námi á þessum brautum.

Iðnskólinn í Reykjavík hefur sérhæft sig í námi á sviðið upplýsingatækni og býður upp á Tölvubraut á Tölvusviði og á Upplýsinga- og margmiðlunarsviði er boði upp á  Upplýsinga- og fjölmiðlabraut  og Margmiðlunarskóla.

Borgarholtsskóli býður upp á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut  þar sem er kennd grunnatriði hönnunar og forsendur fjölmiðlunar og prentunar. Hægt er að sérhæfa sig í margmiðlunarhönnun, fjölmiðlatækni og bókasafnstækni.

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði býður upp á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut með áherslu á fjölmiðlatækni.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla  býður upp á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut  þar sem hægt er að sérhæfa sig í veftækni, net- og tölvuumsjón, grafískri miðlun, fjölmiðlatækni, bókasafnstækni, ljósmyndun, prentun og bókbandi.

Fjöltækniskóli Íslands Íslands býður nám á nýju tæknisviði til stúdentsprófs.

Fjölbrautaskóli Suðurlands  býður upp á grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina

 
Aðalnámskrá framhaldsskóla segir "Til að takast á við síbreytilegan heim tækni, upplýsinga og samskipta er í vaxandi mæli lögð áhersla á upplýsingalæsi. Það er sú þekking og færni sem þarf til að afla, flokka, meta gæði, vinna úr og miðla upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt. Þessi færni er undirstaða ævilangrar símenntunar." (Aðalnámskrá framhaldsskóla. Upplýsinga- og tæknimennt. 1999. Bls. 22)

Háskólar
Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands bjóða upp á nám í tölvunarfræði en ýmsir einkaskólar bjóða einnig upp á margskonar menntun á sviði upplýsingatækni og tölvu- og upplýsingatækni er einnig námsleið við framhaldsdeild KHÍ.

Háskólann í Reykjavík býður upp á tveggja ára nám til diplóma gráðu (60 einingar) í kerfisfræði og 90 eininga nám til B.Sc. og M.Sc. gráðu í tölvunarfræði og unnið er að undirbúningi doktorsnáms. Hægt er að stunda nám í dagskóla fyrir þá sem vilja og geta sótt tíma yfir daginn en einnig er í boði Háskólanám með vinnu (HMV) fyrir þá sem geta sótt tíma eftir kl. 16:00 og í þriðja lagi fjarnám, fyrir þá sem geta ekki sótt tíma reglubundið, t.d. vegna búsetu eða af öðrum ástæðum. HMV og fjarnám í tölvunarfræði er hlutanám og taka nemendur færri námskeið á hverri önn enn nemendur í fullu námi. Skólinn býður einnig upp á nám í hugbúnaðarverkfræði. Lögð á að nemendur tileinki sér viðurkenndar og nútímalegar aðferðir við hugbúnaðarþróun.

Háskólinn á Akureyri býður upp á nám til B.Sc. gráðu í tölvunarfræði en mikið af kennslunni fer fram á ensku og á því álþjóðlegur blær enda hluti kennara erlendur. Áhersla er á verklegan þátt námsins en einnig er það góður faglegur grunnur í tölvunarfræðum. Félagsstofnun stúdenta (FÉSTA) hefur vel búna stúdentagarða á sínum vegum og er öllum nemendum heimilt að sækja um vist þar.

Háskóli Íslands býður upp á nám til B.Sc. og M.Sc.- meistaragráðu í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði og tölvuverkfræði við verkfræðideild skólans. Í námi í tölvunarfræði er lögð áhersla á að nemendur öðlist grunn í sígildum tölvunarfræðum og stærðfræði en hugbúnaðarfræðin tengir saman verkfærði og tölvunarfræði. Einnig er boðið upp á tveggja ára þverfaglegt rannsóknatengt meistaranám í upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum.


Einkaskólar

Fjölmargir einkaskólar bjóða einnig fjölbreytt nám í upplýsingatækni.