Athygli vakin á námi í upplýsingatækni á heilbrigðissviði
Hér með er að vakin athygli á meistaranámi í upplýsingatækni á
heilbrigðissviði (MHI) sem kennt er við Háskóla Íslands. Um er að ræða
tveggja ára þverfaglegt, rannsóknatengt nám á meistarastigi, sem hófst
haustið 2004. Námið er skipulagt sameiginlega af þeim háskóladeildum
sem aðild eiga að náminu, sem eru félagsvísindadeild,
hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, læknadeild og verkfræðideild.
Einnig á LSH aðild að náminu.
Tilgangur námsins er að veita þverfaglega, hagnýta, sem og fræðilega
menntun til starfa á ýmsum sviðum er snerta upplýsingatækni á
heilbrigðissviði. Markmið námsins er að koma til móts við þarfir
samfélagsins um rannsóknir, þróun, þjónustu og stefnumótun sem tengist
skráningu, meðhöndlun og vinnslu gagna á sviði heilbrigðismála.
Þann 15. mars nk. rennur út frestur til þess að sækja um inngöngu í
námið næstkomandi skólaár og því vert að minnast á árlega námskynningu
Háskóla Íslands sem fram fer 26. febrúar, kl. 11:00-16:00 og mun
MHI-námið hafa aðsetur í íþróttahúsi HÍ við Suðurgötu: http://www.hi.is/page/namskynning2006
Upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðunni http://www.hi.is/nam/hjukrun/healthinformatics/index.html og á skrifstofum aðildadeilda.
Velkomið er að hafa samband við undirritaða ef einhverjar spurningar vakna.
Bestu kveðjur,
Þórana Elín Dietz
Verkefnastjóri framhaldsnáms
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík
Sími: 525-5204
Bréfsími: 525-4963
Netfang: thorana@hi.is
Heimasíða: www.hjukrun.hi.is