Nú þegar HD DVD er fallið frá og Blu-ray er eitt um að bjóða háskerpumyndir á DVD vakna spurningar um hvort það verði ekki skammlíf tækni ef mynd-að-vild (VOD) nær fótfestu, og yfirhöndina. Apple hefur nú hrist nokkuð upp í sjónvarpi sínu, þar sem hægt er að sækja háskerpumyndir um Netið í þar til gert box, og ef eitthvað er að marka meðfylgjandi kynningu er framtíðin í tækni sem þessari.