Aðalþema CeBIT tölvusýningarinnar í Þýskalandi var græn áhersla í UT, það er að draga úr skaðlegum áhrifum vegna tækninnar. Það fór hinsvegar mjög lítið fyrir þeim þætti sýningarinnar. Breyttar áherslur sýningarhaldara ollu því að einbeitt var að lausnum en sýningin var fyrir vikið fremur bragðdauf auk þess sem fimm prósent færri aðilar sýndu þetta árið.