Samskiptareglan HSPA er fylgifiskur þriðju kynslóðar farsíma og þegar best lætur má búast við að ná nokkrum megabitum á sekúndu í gagnaflutningshraða. Það ásamt breyttum áherslum í gjaldtöku er talin skýring á miklum vexti sem farsímafyrirtæki sjá í umferð frá tölvum og símum. Notendafjöldinn hefur tífaldast á skömmum tíma og þetta reynir á innviði símanetanna.