Skip to main content

Ofurhraður netaðgangur heldur innreið sína

Bandaríska fyrirtækið Comcast býður núna í einni borg viðskiptavinum sínum að fá 50 Mbit/sek Internet áskriftir fyrir sem svarar um 10.000 kr./mán. og byggir tækni sína á nýjum staðli fyrir kapalmótöld. Líta má á þetta skref sem lið í að hafa undan umferð jafningjaneta fyrir skráaskipti (P2P). Þó ætla mætti að þessi hraði slái á flöskuhálsa er reynslan í Japan sú að þó netteningar fari í 100 Mbit/sek fylltist allt strax af Torrent-umferð.  

Sjá nánar