Þegar fréttist að stofnendur Skype símaþjónustunnar ætluðu að gera samskonar hluti í vefsjónvarpi voru raddir sem sögðu að Joost gæti þýtt endalok hefðbundins sjónvarps. Þó ekki sé langur tími liðinn er staðan aldeilis önnur og Joost þarf núna að ganga í gegnum "enduruppröðun" eins og það er orðað. Ein hindrun á leið Joost er þeirra eigin spilari en aðrir hafa kosið að sleppa slíku og nota Flash-spilara inni í vöfrum.